Fréttasafn



13. mar. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Ljósmyndarafélag Íslands

Afmælishátíð Ljósmyndarafélags Íslands kynnt á aðalfundi

Ljósmyndarafélag Íslands hélt aðalfund félagsins í Húsi atvinnulífsins í gær og mættu 11 félagsmenn á fundinn. Fundurinn gekk vel og afgreiðsla mála var hröð og skilvirk. Lárus Karl Ingason, fyrrverandi formaður félagsins, var kosinn fundarstjóri. Guðmundur Viðarsson, formaður félagsins, flutti skýrslu stjórnar og kynnti jafnframt ársreikning félagsins. Reikningurinn var samþykktur samhljóða af fundarmönnum. Engar tillögur bárust um lagabreytingar né breytingar á árgjaldi félagsins.

Formaður félagsins kynnti fyrirkomulag og dagskrá 100 ára afmælishátíðar félagsins sem haldin verður 25. apríl næstkomandi og er stefnt að stórri og glæsilegri hátíð.

Á fundinum bárust engin framboð til stjórnar á fundinum en Rán Bjargardóttir óskaði eftir lausn frá störfum í stjórn og var það samþykkt. Hún mun þó halda áfram störfum fram yfir afmælishátíð félagsins.

Myndir/Gunnar Leifur

Lárus Karl Ingason, fundarstjóri.

645381008_2117145955687241_687169254562682775_nGuðmundur Viðarsson, formaður Ljósmyndarafélags Íslands.

648386642_1613028996603817_6843960961244722402_n

649104518_927073146960256_6225073276277346278_n