Fréttasafn



14. júl. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Samtök arkitektastofa

Áhyggjur arkitektastofa af þróun húsnæðisverkefna

„Við höfum áhyggjur en við erum ekki að panikka,“ segir Halldór Eiríksson, formaður Samtaka arkitektastofa, Samark, í fréttum RÚV um könnun meðal félagsmanna samtakanna um stöðu verkefna og horfur til framtíðar en um 30 arkitektastofur heyra undir samtökin. Halldór segir það vera bróðurpart þeirra stofa sem séu með arkitektaþjónustu á Íslandi og að um helmingur arkitektastofa telja stöðu verkefna verða óbreytta á næsta ári og ekki sjá fram á stóra niðursveiflu og að fleiri en færri af hinum helmingnum telji aftur á móti að verkefnum fari fækkandi. „Maður finnur að það er erfitt að koma húsnæðisverkefnum af stað og það er alveg viðbúið að menn fari að finna fyrir þessu.“ Í frétt RÚV kemur fram að Samark hafi áhyggjur af þróuninni til framtíðar og að Halldór viti til þess að verktakar hafi verið að minnka við sig að undanförnu og að einhverjar uppsagnir hafi átt sér stað.

Færri að láta hanna fyrir sig

Þá kemur fram í frétt RÚV að enn sé nokkuð um uppbyggingu hjá hinu opinbera og hjá fyrirtækjum og nefnir Halldór sem dæmi uppbyggingu á vegum Isavia og Landspítalans. Aftur á móti hafi hægt talsvert á íbúðaruppbyggingu og færri séu að láta hanna fyrir sig. Halldór segir að mikilvægt sé að íbúðarhúsnæði sé hannað af kostgæfni en ekki í æsingi og flýti þegar efnahagsástand leyfi. Jafnframt segir í fréttinni að miklar umræður hafi skapast um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis að undanförnu enda margar íbúðir óseldar þrátt fyrir að svo virðist sem mikil vöntun sé á íbúðarhúsnæði. Halldór segir það vekja upp spurningar um hvernig húsnæði sé þörf á og hvort verið sé að byggja vitlausa tegund af húsnæði, á vitlausum stöðum eða á vitlausu verði.

RÚV, 10. júlí 2026.