Fréttasafn



30. apr. 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Ákveðin vonbrigði með húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar

„Fyrstu viðbrögð voru ákveðin vonbrigði,“ segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, í fréttum Sýnar um annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem felur í sér 1.200-1.400 íbúðir á ríkisreitum í Reykjavík Hún segir að húsnæðipakkinn svari ekki bráðavanda byggingamarkaðarins, stjórnvöld hefðu átt að nota pakkann til að liðka fyrir uppbyggingu strax. Jóhanna segir að pakkinn skili ekki nægum svörum við stöðunni sem byggingargeirinn standi frammi fyrir núna. „Þetta eru flóknar lóðir og það tekur langan tíma að skipuleggja þetta.“ 

Jóhanna segir í frétt Sýnar að stjórnvöld hefðu fremur átt að beina sjónum að því sem tefji uppbyggingu og sölu í dag. „Við hefðum viljað sjá að það væri frekar tekið á þessum bráðavanda sem byggingamarkaðurinn er í núna. Gjaldskrár sveitarfélaganna hafa hækkað gríðarlega undanfarin ár. Stjórnvöld eru búin að boða frekari skattahækkanir á byggingariðnaðinn sem við höfum viljað sjá þau hætta við á þessum tímapunkti. Lánþegaskilyrði Seðlabankans eru mjög erfið um þessar mundir og vextir gera kaupendum erfitt fyrir. Þar af leiðandi situr markaðurinn uppi með mikið af óseldum íbúðum.“ 

Hér er hægt að horfa á viðtalið við Jóhönnu Klöru í heild sinni.

Sýn/Vísir, 28. apríl 2026.