Aldrei fleiri sótt Iðnþing Samtaka iðnaðarins
Aldrei hafa fleiri sótt Iðnþing Samtaka iðnaðarins. Hátt í 900 skráðu sig og fylltist Silfurberg í Hörpu fimmtudaginn 5. mars. Auk þess horfðu yfir 2.300 á beina útsendingu frá þinginu.
Finnum samhljóminn var yfirskrift þingsins þetta árið. Við byggjum öll okkar lífskjör á framleiðslu verðmæta. Aukið spennustig á alþjóðasviðinu og breytt aðgengi að erlendum mörkuðum kalla á sterka hagsmunagæslu Íslands. Óvissa og auknar þrengingar í efnahagsmálum hér á landi krefjast þess að heimatilbúnum hindrunum verði rutt úr vegi í þágu samfélagsins alls. Með því að stilla saman strengina getum við skapað samhljóm um nauðsynlegar umbætur.
Hér er hægt að nálgast allt efni þingsins; myndbönd, ljósmyndir, greiningar, útgáfur og umfjöllun:
https://www.si.is/idnthing/idnthing-2026/














































