Allra tjón þegar verðtryggð lán landsmanna hækka
„Við höfum gjarnan farið í að leita að einhverjum sökudólgum í þessari umræðu, ég held að við mættum bara spara okkur þá umræðu akkúrat núna,“ segir Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, í Kastljósi þar sem rætt er við hann og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um stöðuna í efnahagslífinu, hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig og 5,2% verðbólgu. „Það var reynt að fara í hófstilltari kjarasamninga hér síðast heldur en áður. Það greinilega tókst ekki nægilega vel hjá okkur.“ Hann segir að mestu máli skipti hvernig brugðist verði við stöðunni. „Ef við sitjum föst áfram í verðbólgu sem þessari næstu 12, 18 mánuðina þá getum við verið að horfa hér á talsvert meira atvinnuleysi, talsvert verri stöðu á húsnæðismarkaði, bara talsvert verri stöðu fyrir almenning. Þetta er auðvitað bara allra tjón þegar við erum að horfa á verðtryggð lán landsmanna hækka með þessum hætti.“ Þorsteinn: „Okkur ber bara skylda til að hlusta á þau varnarorð sem höfð eru uppi og hvernig við getum brugðist við.“
Hér er hægt að horfa á viðtalið í Kastljósi í heild sinni.
RÚV, 19. mars 2026.

