Fréttasafn



5. mar. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki

Ályktun Iðnþings 2026

Ályktun Iðnþings 2026 var samþykkt á aðalfundi Samtaka iðnaðarins sem fram fór í dag 5. mars: 

1. Iðnþing 2026 áréttar mikilvægi íslensks iðnaðar sem burðarstoðar í efnahagslífi þjóðarinnar. Iðnaður skapar 40% útflutnings, fjórðung landsframleiðslu og 52 þúsund störf. Íslendingar gera sér grein fyrir mikilvægi iðnaðar en níu af hverjum tíu landsmanna telja að íslenskur iðnaður hafi jákvæð áhrif á samfélagið í heild.

2. Við byggjum okkar lífskjör á því að framleiða verðmæti og flytja út á erlenda markaði. Aukið spennustig á alþjóðasviðinu og þrengingar í efnahagsmálum hér á landi kalla á öfluga hagsmunagæslu Íslands og að heimatilbúnum hindrunum sé rutt úr vegi. Með því að stilla saman strengina getum við skapað samhljóm um mikilvægar umbætur í þágu samfélagsins alls. Tryggja þarf hagsmuni Íslands á óvissutímum og auka verðmætasköpun með því að tryggja að hér sé starfsumhverfi iðnaðar eins og best verður á kosið.

3. Samhliða aukinni spennu í samskiptum ríkja og óvissu í alþjóðaviðskiptum stendur Ísland frammi fyrir nýjum áskorunum. Við þurfum að tryggja viðnámsþrótt samfélagsins með sterkari innviðum, auknu raforkuöryggi, traustari samgöngum og öflugri matvælaframleiðslu. Til að styrkja fæðuöryggi þjóðarinnar þarf að tryggja aðfangakeðjur og sömuleiðis auknar birgðir nauðsynlegra aðfanga til matvælaframleiðslu sem og samgangna og annarra innviða. Stórauka þarf samstarf stjórnvalda og atvinnulífs til þess að efla áfallaþol samfélagsins.

4. Það er ekki sjálfgefið að atvinnulífið blómstri. Í dag glíma fyrirtæki við alþjóðlega óvissu og kerfislæg vandamál sem hamla vexti og draga úr samkeppnishæfni. Rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja er orðið of flókið, of kostnaðarsamt og ófyrirsjáanlegt. Þetta kostar fyrirtæki tíma, mannauð og fjármagn sem mætti nýta í uppbyggingu, nýsköpun og verðmætasköpun.

5. Fjölgun nemenda í iðngreinum og STEAM-fögum er nauðsynleg til að mæta þörfum iðnaðarins og tryggja undirstöður íslensks samfélags. Ráðast þarf í kröftuga uppbyggingu verknámsskóla um allt land til að mæta þörfum atvinnulífsins eftir aukinni tæknifærni og sérþekkingu.

6. Óstöðugleiki á húsnæðis- og vinnumarkaði, sem leitt hefur til þrálátrar verðbólgu og hárra vaxta, dregur úr samkeppnishæfni og fjárfestingu. Það þarf samhljóm til þess að nauðsynlegar umbætur raungerist en annars er hætt við langvarandi óstöðugleika.

7. Iðnþing fagnar atvinnustefnu stjórnvalda en árangurinn veltur að miklu leyti á þeim aðgerðum sem ráðist verður í til að fylgja eftir metnaðarfullum markmiðum. Ef vel tekst til verður atvinnustefna stökkpallur inn í næsta hagvaxtarskeið á Íslandi.

Iðnþing 2026 kallar eftir

  • Einföldun regluverks og fyrirsjáanleika í stjórnsýslu.
  • Aukinni raforkuöflun.
  • Átaki í uppbyggingu innviða.
  • Lægri verðbólgu og vöxtum með umbótum á húsnæðismarkaði og vinnumarkaði og aðhaldi í ríkisfjármálum.
  • Styttri málsmeðferðartíma og endurskoðun gjaldtökuheimilda sveitarfélaga vegna húsnæðisuppbyggingar.
  • Fleiri iðnmenntuðum á vinnumarkað og fleiri með bakgrunn í STEAM greinum.
  • Öflugum og fyrirsjáanlegum skattahvötum vegna rannsókna og þróunar, en kerfið hefur ekki virkað sem skildi á síðustu misserum.