Fréttasafn



19. feb. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Arkitektar og verkfræðingar kanarífuglinn í kolanámunni

„Oft er sagt að arkitektar og verkfræðingar séu kanarífuglinn í kolanámunni. Þeir eru sá geiri innan mannvirkjagerðar sem fyrst finnur fyrir samdrætti,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, um nýja greiningu SI sem sýnir að stjórnendur arkitekta- og verkfræðistofa vænti samdráttar í verkefnum á íbúðamarkaði á næstunn. Hann segir  í samtali við Morgunblaðið að þetta séu ekki góðar fréttir fyrir markaðinn sem hafi verið að kalla eftir fleiri íbúðum en ekki færri. 

Samkvæmt greiningunni hefur uppbygging dregist saman undanfarin ár. Þannig voru 9.000 íbúðir í byggingu árið 2023 en aðeins 6.000 nú. „Ef við skoðum ástæðurnar fyrir þessu þá eru það háir vextir sem draga úr fjárfestingu í uppbyggingu íbúða og einnig hert lántökuskilyrði fyrir einstaklinga. Seðlabankinn stýrir hvorutveggja. Hann vill koma á verðstöðugleika á húsnæðismarkaði sem hefur tekist í hagfræðilegum skilningi en vandinn er að undirliggjandi kraftar benda til óstöðugleika í framtíðinni. Þar á ég við hina lýðfræðilegu þætti, fólki fjölgar, þjóðin eldist og leitnin er í þá átt að færri verða í hverri íbúð í framtíðinni. Við erum alltaf aðeins á eftir í þróuninni á Norðurlöndum.“ 

Morgunblaðið / mbl.is, 19. febrúar 2026. 

Morgunbladid-19-02-2026_2