Atvinnuleysi í iðnaði að vaxa
Í Þetta helst á Rás 1 er fjallað um atvinnuhorfur og aukið atvinnuleysi á óvissutímum og meðal annars rætt við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, sem segir að að efnahagsaðstæður fyrirtækja í iðnaði hafi versnað. „Efnahagsaðstæður hafa versnað. Við sjáum það vel af niðurstöðum þessarar könnunnar sem við gerðum í upphafi árs meðal stjórnenda í iðnaði að það er orðin algjör viðsnúningur í afstöðu þeirra til bæði efnahagsástandsins og líka hvað varðar horfur litið til næstu tólf mánaða þar sem menn hafa snúist úr því að vera bjartsýnir fyrir ári í að vera svartsýnir núna.“
Ingólfur segir að þarna séu margar ástæður undir. „Flestar þeirra eru heimatilbúnar en einnig hafa áföll komið erlendis frá. En við sjáum að verðbólga er mjög há og vextir eru mjög háir og þetta er að draga kraftinn úr fyrirtækjum og koma illa við heimilin líka.“
Í umfjöllunni kemur fram að Samtök iðnaðarins hafi birt nýja greiningu í síðustu viku þar sem fram kom að bjartsýni væri að breytast í svartsýni meðal stjórnenda í iðnaði. Þeir hafi meðal annars verið spurðir hvernig horfi með fjölda starfsmanna í þeirra fyrirtæki á næstu tólf mánuðum og í fyrsta sinn síðan 2020 sagði hærra hlutfall stjórnenda að starfsmönnum muni fækka en fjölga.
Ingólfur segir að þetta séu töluverð tíðindi. „Það er alger viðsnúningur frá því sem var fyrir ári. Við sjáum þessa þróun þegar í hagstærðum þar sem atvinnuleysi í iðnaðinum hefur verið að vaxa, lausum störfum hefur verið að fækka og við sjáum að heildarfjöldi starfandi í greininni er að dragast saman núna. Það er þróun sem við höfum séð síðan á síðasta ári eftir tiltölulega góðan vöxt síðustu árin þar á undan. Á síðustu fimm árum er búið að fjölga í greininni um eitthvað um 6 þúsund manns en nú sjáum við fækkun. Greinin er mjög umfangsmikil. Í henni starfa rétt um 52 þúsund manns sem er um einn af hverjum fjórum starfandi í hagkerfinu. Þegar svona stór grein fer að upplifa samdrátt þá sést það í atvinnuleysistölum fyrir landið í það heila og við höfum séð þær verið að hækka.“
Á vef RÚV er hægt að nálgast þáttinn í heild sinni.
RÚV, 23. mars 2026.

