Ávarp fráfarandi formanns SI á Iðnþingi 2026
Fráfarandi formaður SI, Árni Sigurjónsson, flutti ávarp í upphafi Iðnþings 2026:
Kæru félagsmenn Samtaka iðnaðarins og aðrir góðir gestir!
Ég er mjög stoltur af því að við setjum á dagskrána hér á Iðnþingi mikilvæga og tímabæra hvatningu til okkar allra um að stilla saman strengina og finna samhljóm. Ekki að allir verði alltaf sammála eða sömu skoðunar, heldur að við nýtum okkar ólíku styrkleika með samstilltum hætti til að veita mikilvægum umbótamálum framgang. Á óvissu- og umbrotatímum, hvort heldur sem horft er til stöðu efnahagsmála hér innanlands eða þeirrar spennu og óróa sem vex stöðugt í alþjóðamálum, ríður á að standa saman. Við sem samfélag höfum hvorki tíma né ráð á að tala í óeiningu þegar allt umhverfið í kring um okkur er jafn hverfult og raun ber vitni.
Við erum ólík, höfum ólík hlutverk og kunnum að berjast fyrir ólíkum hagsmunum en við vitum að við getum náð samstöðu um mörg framfaramál sem hafa vafist of lengi fyrir okkur. Forsenda slíkra breytinga er aukið samtal okkar á milli – stjórnvalda, atvinnulífs, aðila vinnumarkaðarins og annarra hagaðila – og markmiðið er að slíkt samtal hefjist hér og nú. Gleymum okkur samt ekki í samtalinu því árangur næst nefnilega ekki með því að bíða eftir fullkomnum aðstæðum – árangur næst þegar menn leggja af stað.
Gott dæmi um mál sem við höfum fundið samhljóm um er mikilvægi nýsköpunar. Árangurinn hefur ekki staðið á sér því vöxtur tækni- og hugverkaiðnaðar undanfarinn áratug hefur verið ævintýralegur. Aukin fjölbreytni í útflutningi hefur rennt stoðum undir aukinn stöðugleika í íslenska hagkerfinu. Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar á síðasta ári námu tæplega 370 milljörðum króna, sem samsvarar 18% af heildarútflutningstekjum hagkerfisins. Hin svokallaða fjórða stoð útflutnings er þannig orðin sú þriðja stærsta og ef rétt verður á spilum haldið gæti hún orðið verðmætasta útflutningsstoðin í lok þessa áratugar.
Ekki nóg með að tækni- og hugverkaiðnaður stefni hraðbyri í að verða stærsta útflutningsstoðin, og skili stöðugt vaxandi fjárhæðum til samfélagsins í formi skatta, þá höfum við á undanförnum árum fengið skýrar mælingar á verðmæti íslenskra fyrirtækja innan þess geira. Erlendir aðilar hafa þannig keypt og fjárfest í Kerecis, Marel og nú síðast atNorth – svo einhver fyrirtæki séu nefnd. Hér er samanlagt um háar upphæðir að ræða – tugi milljarða dollara – sem sannarlega sýna að nýsköpun, frumkvöðlastarf og hvetjandi starfsskilyrði knýja verðmætasköpun, fjölbreytni og velsæld fyrir íslenskt samfélag. Fjárfesting í nýsköpun er nefnilega hagvöxtur framtíðarinnar.
Aðrir málaflokkar þar sem skort hefur á samhljóminn bera þess skýr merki að töluvert vantar upp á árangur. Spekingar töluðu um að loknu hinu meinta verðmætasköpunarhausti – sem var reyndar öfugmæli eftir allt saman – væri nú runnið upp verðbólguvor. Það er því miður mikið til í því.
Nýjustu atvinnuleysistölur vekja sömuleiðis ugg í brjósti okkar allra, því fátt er meira eitur í beinum Íslendinga en atvinnuleysið. Íslenskt atvinnulíf og heimilin í landinu finna rækilega fyrir þessari stöðu og þar glímum við fyrst og fremst við heimatilbúnar orsakir, sem hægt hefði verið að stemma stigu við og afstýra.
Það skýtur skökku við að aðgerðir og ákvarðanir hins opinbera viðhaldi og auki raunar verðbólgu. Sú staðreynd að ríki og sveitarfélög hafi verið leiðandi í launaþróun og tekið fram úr hinum almenna markaði er fráleit staða sem við þurfum að ná samstöðu um að breyta. Við gerum einfaldlega þá kröfu að hið opinbera gangi á undan með góðu fordæmi, einkum hvað varðar aðhald og aga í ríkisfjármálum, launaþróun og varfærni í gjaldahækkunum.
Nú er því góður tími til að finna samhljóminn í efnahagsmálum.
Kæru félagar,
Það eru margir til kallaðir til að gefa álit og ráð í stöðunni. Það er hins vegar svo að það eru fáir útvaldir sem hafa raunveruleg áhrif og völd til að snúa þessari óheillaþróun við. Við höfum kallað eftir sterkri pólitískri forystu í þessum brýnu verkefnum dagsins.
Sveitarfélögin elta gjarnan það merki sem gefið er frá ríkinu. Aðilar vinnumarkaðarins er annar markhópur fyrir skýr skilaboð um hvernig leiðin skuli vörðuð. Samtal og samvinna við Seðlabankann skiptir sömuleiðis sköpum. Ríkisstjórnin má ekki einskorða hlutverk sitt við rekstur ríkisins því hún er fyrst og síðast að reka samfélagið. Sú stefna sem er mörkuð, þau skilaboð sem eru gefin og þær aðgerðir sem ráðist er í leiða alla hina í þá átt sem stefna skal að.
Samtök iðnaðarins og iðnrekendur hafa lagt sig fram um að eiga farsælt samstarf og uppbyggileg samskipti við stjórnvöld hverju sinni sem byggir á trausti og virðingu. Við munum halda því áfram og ekki liggja á okkar liði í góðu samstarfi við stjórnvöld til að ná farsælum árangri og bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin.
Kæru félagsmenn Samtaka iðnaðarins og aðrir góðir gestir,
Þetta er lokaávarp mitt á Iðnþingi sem formaður Samtaka iðnaðarins. Það hefur verið mér mikill heiður að hafa verið treyst fyrir að standa í stafni okkar öflugu og mikilvægu samtaka síðustu sex árin. Mér finnst bæði stutt og langt síðan ég steig fyrst á þetta svið árið 2020 og líklega vorum við ekki fleiri en 50 í salnum þá vegna samkomutakmarkana í heimsfaraldri. Það var sannarlega í takt við þá tíma – rétt eins og fullt hús og rúmlega það hér á Iðnþingi í dag er í takti við þann kraft sem ég skynja í íslensku atvinnulífi um þessar mundir, þrátt fyrir margvíslegar áskoranir og óvissu.
Í sameiningu höfum við nefnilega náð miklum árangri, okkur hefur tekist að setja ótalmörg mikilvæg mál á dagskrá, skapað umræðu, lagt til lausnir og þrýst á aðgerðir – samfélaginu öllu til heilla. Íslenskur iðnaður er undirstaða hagsældar landsmanna og ég finn að við höfum fundið samhljóminn um fulla ferð áfram. Það verður aðalviðfangsefni okkar hér á Iðnþingi í dag og er vonandi verðmætt innlegg til ykkar allra sem hingað eruð komin fyrir framtíðarverkefni ykkar, því verðmæti morgundagsins bíða eftir að vera sköpuð. Ef við stillum saman strengina og finnum samhljóminn sem víðast mun árangurinn ekki standa á sér.
Kæru vinir,
Um leið og ég þakka ykkur af einlægni fyrir samstarfið, samtölin og samfylgdina undanfarin sex ár býð ég ykkur öll hjartanlega velkomin á Iðnþing 2026!

