Bæta þarf skilyrði til uppbyggingar áður en samdrátturinn festist enn frekar í sessi
„Flestir í þessum geira óttast mest að veturinn verði talsvert verri og salan dragist enn meira saman,“ segir Þorsteinn Víglundsson formaður SI og forstjóri Hornsteina í samtali við Morgunblaðið þar sem fjallað er um að innflutningur sements og fleiri byggingarvara hafi dregist mikið saman að undanförnu. Í fréttinni kemur fram að þekkt sé að sala á framleiddri steypu segi alltaf talsvert um stöðu efnahagslífsins og að fyrstu sex mánuði ársins hafi innflutt sement til landsins vegið 77 þúsund tonn en hafi verið 90 þúsund tonn á sama tímabili í fyrra. Þetta sé samdráttur um 15% á milli ára og að sumarið sé ekki inni í þessum tölum, sem breyti þó ekki þeirri heildarmynd að samdrátturinn sé verulegur.
Einnig er rætt við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, sem segir: „Þetta eru mikilvægar vísbendingar um umfang framkvæmda fram undan og þær fara saman við aðrar tölur sem allar benda í sömu átt. Atvinnulausum í greininni er að fjölga, starfandi í greininni fækkar og vanskil eru að aukast. Við erum því ekki lengur að horfa á einstaka veikleikamerki heldur samfellda þróun, sem veldur áhyggjum. Það tekur langan tíma að koma íbúðauppbyggingu aftur af stað ef hún hefur stöðvast. Ef þessi þróun heldur áfram er hætt við að afleiðingarnar birtist með enn skýrari hætti á næstu misserum í minni íbúðauppbyggingu, færri störfum og auknum þrýstingi á húsnæðismarkaðinn. Það er því mikilvægt að bregðast við núna og bæta skilyrði til uppbyggingar áður en samdrátturinn festist enn frekar í sessi.“
Morgunblaðið / mbl.is, 28. ágúst 2026.


