Fréttasafn



24. apr. 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Bætir gráu ofan á svart að hækka skatta ríkisins á byggingariðnað

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í Kastljósi RÚV að byggingariðnaðurinn sé í hægagangi eða sá hluti iðnaðarins sem er að byggja íbúðarhúsnæði. „Við merkjum hreinlega ákveðin vatnaskil núna hjá iðnaðinum. Við sjáum það að sölutími hefur lengst, vaxtakostnaður er hár og þessi staða er býsna þröng. Það er aukin áhætta þar af leiðandi fyrir fyrirtækin, þau sjá fram á minni hagnað og samdrátt í veltu. Ef við horfum fram á veginn þá eru 43% stjórnenda arkitektastofa og verkfræðistofa sem sjá fram á færri verkefni við íbúðaruppbyggingu. Það er aukinnar svartsýni sem gætir og svo framvegis þannig að merkin eru öll býsna slæm. Eftirspurnin er dræm vegna hárra vaxta og strangra lánþegaskilyrða. En við erum líka að sjá hækkun á kostnaði. Sveitarfélögin hafa stóraukið gjaldtöku á uppbyggingu og núna ætlar ríkið að hækka skatta og bæta þar með gráu ofan á svart.“

Minni hvatar til uppbyggingar

Þegar stjórnandi þáttarins Bergsteinn Sigurðsson spyr Sigurð hvort þurfi ekki að lækka verð vegna minni eftirspurnar segir Sigurður að hver og einn sé að skoða sína stöðu og vinna úr málum. „En ef við horfum á hvatana til uppbyggingar þá eru þeir minni vegna hærri kostnaðar og með lækkandi verði þá verða ennþá minni hvatar til uppbyggingar til að fara af stað í ný verkefni. Við höfum talsverðar áhyggjur af því að við séum komin í vítahring sem lýsir sér í því að það verði þá minna byggt og þegar aðstæður skána, þegar vextir taka að lækka og eftirspurnin eykst, þá verði framboðið ekki nægt.“ 

Auk Sigurðar var Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, gestur í Kastljósinu.

Hér er hægt að horfa á viðtalið í heild sinni við Sigurð og Moniku í Kastljósi.

RÚV, 22. apríl 2026. 

Kastljos-22-06-2026_1Sigurður Hannesson, Bergsteinn Sigurðsson og Monika Hjálmtýsdóttir.