Fréttasafn



14. júl. 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Blikur á lofti í byggingariðnaði og störfum fækkar

Rætt er við Gylfa Gíslason, framkvæmdastjóra Jáverk, í fréttum RÚV um aukið atvinnuleysi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Í fréttinni kemur fram að um síðustu mánaðamót hafi verið hátt í 1.200 atvinnulausir í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar, þar af meira en 500 í sex mánuði eða lengur. Langflestir þeirra búi á höfuðborgarsvæðinu, rúmlega 900, þar næst á Suðurnesjum og svo á Suðurlandi. 888 séu Íslendingar og 279 séu með erlent ríkisfang. Flestir séu á aldrinum 30 til 39 ára. Gylfi segir blikur á lofti í byggingariðnaði og að störfum hafi fækkað, aftur á móti sé ólíklegt að einhver fari þá leið að skipta faglærðum út fyrir ófaglærða. „Það er náttúrulega eins og allir vita þá hérna hefur gengið illa með nýbyggingar íbúða sérstaklega, þannig að þar hafa þeir sem hafa verið eingöngu í þeim bransa verið að draga saman seglin og óhjákvæmilega með því að fækka starfsfólki, því miður,“ segir Gylfi. 

Þegar fréttamaður spyr Gylfa hvort hann kannist við að reynslumiklum og menntuðum iðnaðarmönnum sé sagt upp og í staðinn ráðnir ófaglærðir svarar hann að hann kannist ekki við það. „Mér finnst það afar ólíklegt því að þetta snýst kannski ekki um laun, krónur per klukkustund, heldur hvað gera menn á klukkutímanum og faglærðir menn eru í langflestum tilfellum bara skila meiri og betri vinnu þannig að hérna mér finnst þetta afar ólíklegt.“

RÚV kvöldfréttir/ RÚV vefur, 13. júlí 2026.