BM Vallá, AÞ-þrif og Krónan tilnefnd sem menntafyrirtæki ársins
Tilkynnt hefur verið um hvaða fyrirtæki hafa hlotið tilnefningu sem menntafyrirtæki ársins 2026 en um er að ræða BM Vallá, AÞ-þrif og Krónuna.
Upplýst verður á Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram miðvikudaginn 11. febrúar hvaða fyrirtæki hlýtur titilinn menntafyrirtæki ársins 2026. Jafnframt verður þá tilkynnt um menntasprota ársins.
Hér er hægt að skrá sig á Menntadag atvinnulífsins.




