Fréttasafn



20. sep. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Borgin fer með freklegum hætti inn á samkeppnismarkað

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, segir í frétt Jakobs Bjarnar á Vísi að borgin þrammi með yfirgengilega freklegum hætti inn á viðkvæman samkeppnismarkað. „Borgin ætlar að ráða til sín 60 sérfræðinga í þetta verkefni á kostnað borgarbúa og fyrirtækjanna í borginni og teljum við að meiri gagnsæi eigi að vera um framkvæmdina og aðferðarfræðina í þessu. Til samanburðar er áhugavert að skoða nálgunina hjá ríkinu í verkefninu Stafrænt Ísland en þar hafa mun færri starfsmenn verið ráðnir, aðallega í verkefnastjórn og utanumhald og þróun er útvistað að langmestu leyti.“ 

Sérkennilegar reikningskúnstir borgarinnar

Tilefni fréttar Vísis er umfjöllun Morgunblaðsins um fyrirætlanir Reykjavíkurborgar að setja upp sérstaka deild til að byggja upp stafræna innviði borgarinnar en Samtök iðnaðarins hafa gagnrýnt þessar fyrirætlanir sem áformað er að kosti 10,3 milljarða. Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að þetta verkefni muni spara borginni milljarða króna en Sigríður segir í frétt Vísis að hún telji sérkennilegar reikningskúnstir búa þar að baki. „Það væri áhugavert að sjá þær forsendur sem Reykjavíkurborg gefur sér til að komast að þeirri niðurstöðu að það sé hagkvæmara að ráða starfsfólk beint til borgarinnar til að sinna þessu í stað þess að fá tilboð í einstaka verkþætti, sérfræðiþekkingu og einstakar stafrænar lausnir.“ 

Jafngildir stóru upplýsingatæknifyrirtæki

Sigríður segir einnig í frétt Vísis að við upphaf verkefnisins Stafrænt Ísland hafi verið haft náið samráð við upplýsingatækniiðnaðinn og Samtök iðnaðarins um útfærslu sem hafi verið til fyrirmyndar „Höfum í huga að í samhengi við stærð markaðarins hér þá jafngildir 60 manna teymi hjá Reykjavíkurborg auk annarra sem munu koma að þessu verkefni stóru upplýsingatæknifyrirtæki á íslenskan mælikvarða. Hvað verður um hugverkið, reynsluna og þekkinguna og hvort borgin ætlar að sækja um einkaleyfi á lausnum sem verða þróaðar, hvort borgin hyggst selja þær lausnir til annarra sveitarfélaga í samkeppni markaðinn og svo framvegis. Ennfremur má velta fyrir sér hvort Reykjavíkurborg hyggst sækja í samkeppnissjóði á sviði nýsköpunar, í samkeppni við einkaaðila. Um 900 milljóna króna launakostnaðar á ári er meiri en launakostnaður hjá stórum þróunardeildum stærstu upplýsingatæknifyrirtækja landsins.“

Borgin keppir við atvinnulífið um starfsfólk

Þá segir Sigríður í fréttinni að þetta bendi til þess að þarna verði meðallaun talsvert há og keppt verður um starfsfólk við atvinnulífið og að borgin sé með þessu að taka til sín þekkingu frá fyrirtækjum sem eru að skapa verðmæti og útflutningstekjur og samrýmist það ekki atvinnustefnu borgarinnar sjálfrar, né nýsköpunarstefnu stjórnvalda sem gengur út á efla nýsköpun í atvinnulífi og þar með verðmætasköpun og útflutningstekjur. „Reykjavíkurborg sendir einnig sérstök skilaboð til fyrirtækja borgarinnar með þessu með því að ætla að keppa við þau um verðmæta starfskrafta og lýsir í raun yfir ákveðnu vantrausti á að þau geti leyst úr þessum mikilvægu verkefnum af skilvirkni. Við vitum af fjölmörgum dæmum um sprotafyrirtæki til að mynda sem hafa reynt að nálgast Reykjavíkurborg með hugbúnaðarlausnir eða aðrar stafrænar lausnir og koma að lokuðum dyrum og fá ekki áheyrn. Sprotafyrirtæki eru ekki í stöðu til að keppa við borgina með tilliti til launa.“

Vísir, 17. september 2021.