7. nóv. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki

Bransadagar Iðunnar helgaðir sjálfbærni í iðnaði

Bransadagar Iðunnar fara fram 9.-11. nóvember með fjölbreyttri fræðslu helgaðri sjálfbærni í iðnaði. Á bransadögum koma saman ólíkar iðngreinar og setja sjálfbærni í brennidepil; prent- og miðlunargreinar, matvæla- og veitingagreinar, byggingar- og mannvirkjagreinar, málm- og véltæknigreinar og bílgreinar.

Dagana 9. og 10. nóvember er boðið upp á stafræna fyrirlestra á vefnum frá innlendum og erlendum sérfræðingum í sjálfbærni og umhverfismálum í iðnaði.

Í lok vikunnar, föstudaginn 11. nóvember, er endað á bransapartíi í húsnæði Iðunnar að Vatnagörðum 20.

Húsið opnar kl. 15.00 með eftirfarandi dagskrá:

  • Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku og loftslagsmála, fjallar um grænan iðnað
  • Sonja Rut Aðalsteinsdóttir, service development manager og Sigurður Örn Alfonsson, sustainability specialist, kynna sjálfbærnivegferð Marels
  • Kynning á verkefninu orkuskipti.is
  • Uppistand
  • Frikki Dór stígur á svið
  • Júlladiskó sér um að þeyta skífum
  • Veitingar frá Lady Brewery og Kokkunum

Á vef Iðunnar er hægt að skrá sig.


Fáum við leyfi þitt til að nota Google Analytics til að safna nafnlausum upplýsingum um notkun þína á þessum vef?

Sjáðu nánar á persónuverndarsíðu okkar hvaða áhrif svar þitt hefur.