Breytingar á umsóknarferli Vinnustaðanámssjóðs
Vinnustaðanámssjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja sem taka á móti nemum í vinnustaðanámi og starfsþjálfun sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Vegna breytinga á umsóknarkerfi sjóðsins verður umsóknarferlið í tveimur skrefum. Rafræn ferilbók er forsenda styrkveitingar. Sjóðurinn vonast til að þegar opnað verður fyrir umsóknir verði komin tenging milli umsóknarkerfis Vinnustaðanámssjóðs og rafrænnar ferilbókar þannig að sjálfvirkt verði staðfest hvort vinnustaðanámssamningur sé í gildi. Ef sú tenging verður ekki tilbúin þurfa umsækjendur að láta afrit af námssamningum úr rafrænni ferilbók fylgja umsókn sinni. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir umsóknir í september og er umsóknarfrestur til 10. nóvember kl. 15:00. Sótt verður um styrki vegna vinnustaðanáms á 12 mánaða tímabilinu nóvember 2025 til október 2026.
Mælt er með að vinnustaðir undirbúi umsóknir tímanlega
Til að einfalda umsóknarferlið er fyrirtækjum bent á að:
- ganga úr skugga um að vinnustaðanámssamningar í rafrænni ferilbók séu fullfrágengnir,
- stofna umsókn og skrá nemendur þegar opnað verður fyrir umsóknir,
- safna saman nauðsynlegum fylgigögnum, svo sem launaseðlum sem staðfesta umsótt vinnustaðanám, áður en umsóknarfrestur rennur út.
Um Vinnustaðanámssjóð
Markmið Vinnustaðanámssjóðs er að hvetja fyrirtæki til að taka við nemendum í vinnustaðanám og gera þeim kleift að ljúka þeim verklega hluta starfsnáms sem krafist er samkvæmt námskrá framhaldsskóla.
Nánari upplýsingar á vef Rannís sem hefur umsjón með sjóðnum.
