Brýn framfaramál lenda í töfum vegna flókins regluverks
„Því miður óttast ég að skilningur landsmanna á mikilvægi verðmætasköpunar fyrir samfélagið hafi að töluverðu leyti glatast. Brýn framfaramál sem hrinda á í framkvæmd lenda í töfum jafnvel árum saman vegna flókins regluverks og jafnvel þröngra sérhagsmuna,“ segir Árni Sigurjónsson, formaður SI, í viðtali Sigurðar Boga Sævarssonar í Morgunblaðinu. „Af og til má heyra sérstök viðhorf, eins og til dæmis á liðnu hausti þegar víðtækar bilanir komu upp í álveri Norðuráls á Grundartanga, að álframleiðsla skipti ekki svo miklu máli fyrir hag þjóðarinnar og væri einfaldlega á útleið. Þannig er veruleikinn alls ekki.“
Veitt SI forystu síðustu sex ár
Í viðtalinu kemur fram að Árni hafi setið í stjórn SI í sléttan áratug og veitt þeim forystu síðustu sex ár, frá árinu 2020 og að hann láti af formannsembættinu á komandi Iðnþingi, sem fram fari í byrjun mars, samkvæmt þeirri reglu að enginn skuli gegna því embætti lengur en sex ár samfleytt. Árni segir fara vel á slíkri reglu því með hámarkstímanum sé tryggð regluleg endurnýjun í forystu og áherslum. „Þetta hefur verið gefandi verkefni. Ég tók við formennsku vorið 2020 þegar covid-faraldurinn hafði sett líf okkar allra á hliðina með miklum áhrifum á íslenskt efnahagslíf. Verkefni sem blöstu við atvinnulífinu voru þá strax flókin og brýn úrlausnar. Með stuðningi og aðgerðum stjórnvalda tókst að halda sjó í atvinnulífinu hér betur en víða annars staðar í heiminum. Þann samanburð var auðvelt að gera hjá Marel þar sem starfsemin er um heim allan.“
Eigum mikið undir að efnahagslífið sé í jafnvægi
Í niðurlagi viðtalsins segir Árni verkefnin í íslensku atvinnulífi vera óþrjótandi og allar okkar atvinnugreinar verði í sameiningu að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, styrkja útflutningsstoðirnar okkar og tryggja samkeppnishæfni Íslands. „Það gerum við einna helst með því að ryðja heimatilbúnum hindrunum úr vegi, efla innviðina, tryggja nægt framboð endurnýjanlegrar raforku, einfalda og afhúða regluverk og hvetja til áframhaldandi fjárfestinga landið um kring. Við megum aldrei gleyma því að við erum öll í sama liði og eigum mikið undir því að efnahagslífið sé í jafnvægi.“
Morgunblaðið / mbl.is, 2. febrúar 2026.


