Byggingamarkaðurinn kominn í alvarlegan hægagang
„Byggingamarkaðurinn er kominn í alvarlegan hægagang eftir fjögurra ára vaxtarskeið. Efnahagsumhverfi greinarinnar hefur versnað hratt og samdráttarmerkin eru sérstaklega skýr í húsnæðisuppbyggingu,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í umfjöllun Viðskiptablaðsins um stöðuna í byggingamarkaði þar sem kemur fram að hljóðið sé þungt í þeim verktökum sem blaðið hafi rætt við. Ekki bara sé sala nýrra eigna dræm heldur séu vextir háir og miðað við stöðuna í dag sé ekki útlit fyrir að þeir séu að lækka í bráð. Þá hafi verktakar áhyggjur af því að búið sé að útiloka marga kaupendur með því að þrengja greiðslumat íbúðalána.
Sigurður tekur undir áhyggjur byggingarverktaka. „Við teljum að nú séu vatnaskil, greinin er farin úr vexti í samdrátt og það þarf breytta stefnu ef vandinn á ekki að vaxa. Þetta snýst ekki bara um stöðu byggingarfyrirtækja, þetta snertir heimilin beint í gegnum húsnæðismarkað og vinnumarkað.“ Hann segir verktaka sannarlega hafa dregið verulega úr nýjum verkefnum. „Helstu skýringarnar eru háir vextir og strangari lánaskilyrði. Í nýlegri könnun Samtaka iðnaðarins segja 90% stjórnenda að háir vextir hafi dregið úr uppbyggingaráformum og 87% segja að sölutími íbúða hafi lengst. Þar nefna 80% háa vexti og 67% strangari lánaskilyrði sem helstu ástæður. Þetta þýðir í reynd að verkefni frestast, færri fara af stað og það hægist á uppbyggingu, sér í lagi uppbyggingu íbúða.“
Á vef Viðskiptablaðsins er hægt að lesa umfjöllunina í heild sinni.
Viðskiptablaðið, 22. apríl 2026.


