Byggingariðnaður mikilvæg atvinnugrein fyrir efnahagslífið
Staðan er auðvitað sú að byggingariðnaður er mjög mikilvæg atvinnugrein segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í morgunútvarpi Rásar 2 þar sem rætt erum stöðuna í byggingariðnaði þar sem um síðustu mánaðarmót voru hátt í 1.200 atvinnulausir. Sigurður segir að í september í fyrra hafi samtökin gefið út greiningu um samdrátt í byggingariðnaði þar sem veltan væri að dragast saman og að komin væri ákveðin stöðnun í greinina. Hann segir byggingariðnað mikilvæga atvinnugrein. „Í fyrsta lagi vegna þess að hún gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu við það að byggja upp innviði og íbúðir og fleira sem við þurfum og notum á hverjum degi en síðan er þetta umfangsmikil atvinnugrein. Á síðasta ári störfuðum um 20 þúsund manns í þessari grein, veltan var um 700 milljarðar, skattsporið er 188 milljarðar og þröngt skattspor, beinir skattar, voru 83 milljarðar.“
Sigurður segir að umsvifin séu mikil. „Þetta er mikilvægt fyrir efnahagslífið og samfélagið og þess vegna er það mjög alvarlegt að það sé komin þessi staða upp þar sem að atvinnuleysi er að aukast, það hefur núna aukist um tæplega 40% á stuttum tíma sem endurspeglar þessa stöðu í greininni, sérstaklega hvað varðar uppbyggingu íbúða, þar er mesta höktið.“
Á vef RÚV er hægt að hlusta á viðtalið við Sigurð í heild sinni.
RÚV, 14. júlí 2026.

