Fréttasafn



14. júl. 2025 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Carbfix hlýtur WIPO Global verðlaun fyrir framúrskarandi nýsköpun

Carbfix sem er meðal aðildarfyrirtækja SI hlaut WIPO Global verðlaun 2025 í umhverfisflokki en um er að ræða viðurkenningu Alþjóðahugverkastofnunarinnar sem er undirstofnun Sameinuðu þjóðanna sem ber ábyrgð á hugverkaréttindum. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi nýsköpun sem leiðir til aukinnar sjálfbærni. Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix, sem tók á móti verðlaununum fékk einnig sérstaka viðurkenningu sem besti kvenfrumkvöðullinn. Edda Sif veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á allsherjarþingi Alþjóðahugverkastofnunarinnar (World Intellectual Property Organization – WIPO) í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Genf í Sviss. WIPO Global verðlaunin eru veitt sprotafyrirtækjum og litlum og meðalstórum nýsköpunarfyrirtækjum sem hafa nýtt sér skráningu hugverkaréttinda með árangursríkum hætti til að skapa áþreifanleg efnahagsleg og samfélagsleg verðmæti. Carbfix er eitt tíu fyrirtækja sem hlýtur verðlaunin í ár og var valið var úr hópi 780 fyrirtækja frá 95 löndum.

Í tilkynningu segir að Carbfix hljóti verðlaunin fyrir byltingarkennda og einkaleyfisvarða aðferð til að binda koldíoxíð í bergi til að vinna gegn gróðurhúsaáhrifum og fyrir markvissa skráningu hugverkaréttinda við þróun og skölun á tækni sinni sem takist á við eitt brýnasta viðfangsefni samtímans. „Það er mikill heiður fyrir Carbfix að hljóta WIPO Global verðlaunin,“ sagði Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix við verðlaunaafhendinguna í morgun. „Verðlaunin eru viðurkenning á þeirri miklu vinnu sem við höfum lagt í þróun og uppbyggingu Carbfix tækninnar og þeirri markvissu hugverkastefnu sem við höfum mótað samhliða. Við erum stolt af því að hljóta slíka viðurkenningu á alþjóðavettvangi og að Ísland eigi fulltrúa í hópi framsæknustu hugverkaþróunarfyrirtækja heimsins.“

Edda-Sif-WIPO-Global-002-