Dual-Use til umræðu á opnum fundi í Nýsköpunarvikunni
Í tilefni af Nýsköpunarvikunni – Iceland Innovation Week (IIW), bjóða Íslandsstofa, Samtök iðnaðarins (SI) og utanríkisráðuneytið til opins morgunfundar fimmtudaginn 30. apríl kl. 9:00-10:30 á Hilton Reykjavík Nordica. Kynntar verðar niðurstöður nýrrar kortlagningar á sviði tækni með tvíþætt notagildi (e. Dual-Use Technology), ekki síst m.t.t. fjárfestinga, innkaupa og tækifæra í norrænu samstarfi. Í kjölfarið verða panel-umræður þar sem sjónum er einkum beint að tækifærum í norrænu samstarfi.
Viðburðurinn ber heitið Bridging the Dual-Use Gap og fer fram á ensku. Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg.
DAGSKRÁ:
9:00 Opnun
- Ávarp - Jónas G. Allansson, Varnarmálaskrifstofa, Utanríkisráðuneytið
- Kynning á niðurstöðum kortlagningar um Dual-Use Tech-umhverfið: fjárfestingar, innkaup og tækifæri í norrænu samstarfi - Sæmundur K. Finnbogason, ráðgjafi
Pallborðsumræður - þátttakendur:
- Ville Cantell, sendiherra Finnlands gagnvart Íslandi
- Emil Grímsson, Arctic Trucks
- Magnús Már Þórðarson, Tern Systems
- Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, KeyStrike
- Sæmundur K. Finnbogason, ráðgjafi
- Umræðum stýrir Kristinn Árni L. Hróbjartsson, VARÐA
Spurningar og netagerð
Hér er hægt að skrá sig.

