Fréttasafn



26. jún. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

EES-samningurinn hefur reynst okkur gríðarlega vel

„Samtök iðnaðarins hafa í gegnum árin sagt að EES-samningurinn sé án efa einn mikilvægasti alþjóðasamningurinn sem Ísland er aðili að. Hann er auðvitað ein meginundirstaða lífskjara hér, eykur samkeppnishæfni landsins og tryggir okkur aðgengi að mörkuðum. Það er samt auðvitað ljóst að samningurinn er kominn til ára sinna en hann hefur reynst okkur gríðarlega vel,” segir Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, meðal annars á FF7 um EES-samninginn. Hún segir að nýr iðnaðarhraðall, Made in Europe, sé dæmi um regluverk sem snúist í auknum mæli um efnahagslegt öryggi álfunnar þar sem leitast er eftir að styrkja iðnað í álfunni og styðja við framleiðslu með evrópskan uppruna í ákveðnum greinum og eins sé aukin áhersla á öryggis- og varnarmál

Lilja segir að það sé mat SI að mikilvægt sé að væntanlegt regluverk gildi einnig um EES-ríkin Noreg, Ísland og Liechtenstein þó eigi eftir að tryggja að umrædd löggjöf verði tekin upp sem hluti af EES-samningnum „Það reynir því á sveigjanleika EES-samningsins næstu misseri og eins á kvik viðbrögð og að lausnir verði fundnar hvað þetta varðar. Íslensk stjórnvöld, auðvitað í góðri samvinnu við hagaðila og atvinnulífið, þurfa virkilega að vera með augun á boltanum. Það verður svo eftir atvikum að skoða hvort hraða þurfi upptöku og innleiðingu reglugerða til að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði fyrir íslenskt atvinnulíf.” 

Á vef FF7 er hægt að lesa viðtalið við Lilju í heild sinni.

FF7, 25. júní 2026.