Fréttasafn



25. mar. 2026 Almennar fréttir

Ef verða viðræður við ESB gætum við hagsmuna okkar félagsmanna

Við erum hagsmunasamtök og gætum hagsmuna fyrirtækja í fjölbreyttum iðnaði þannig að ef þjóðin óskar þess að fara í viðræður að þá munum við gæta hagsmuna okkar félagsmanna. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í Torginu á RÚV þar sem rætt er um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

Sigurður segir að ef til viðræðna muni koma þá muni Samtök iðnaðarins greina vel samningsmarkmið og aðra hagsmuni og koma því á framfæri. Það er í rauninni of snemmt að segja til um það núna hvernig það lítur út.“ 

Sigurður segir jafnframt að hér í okkar samfélagi séu fjölmörg vandamál og margar heimatilbúnar hindranir. „Núna þegar það ríkir mikil óvissa á alþjóðasviðinu sem við sjáum mjög reglulega afleiðingar þess að þá þurfum við að hafa meira fyrir því hérna heima að ná árangri.“

Þá kemur fram í máli Sigurðar að meðal félagsmanna SI séu býsna skiptar skoðanir. „Við höfum orðið vör við vaxandi andstöðu varðandi inngöngu í ESB þannig að við sem samtök höfum ekki skoðun á því hvernig landsmenn ættu að kjósa í ágúst ef af verður. Boltinn er bara hjá þjóðinni eins og ríkisstjórnin segir þannig að við bara bíðum eftir því hvernig þjóðin kýs.“

Á vef RÚV er hægt að nálgast samantekt úr þættinum.

Torgið á RÚV, 24. mars 2026.