Fréttasafn



3. jún. 2025 Almennar fréttir

Eflum samkeppnishæfni með umbótum á lykilþáttum

„Við höfum það í rauninni bara í hendi okkar,“ sagði Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í umræðum á ársfundi Samáls og var þar að vísa til hvað þyrfti að gera til að efla samkeppnishæfnina með því að horfa á þá lykilþætti sem helst ráða breytileika í framleiðni á milli landa. Hann sagði að þar væri um að ræða mennta- og mannauðsmálin, starfsumhverfið, nýsköpun, orkumálin og innviðirnir og að í öllum þessum málum gætum við unnið að umbótum. Sigurður sagði að Samtök iðnaðarins hafi fagnað mjög þeim áformum ríkisstjórnarinnar að móta og setja iðnaðarstefnu á Íslandi. Hann sagði að hægt væri að leggja ólíkar merkingar í hugtakið en að sú vinna væri að fara af stað og þar væru ýmsar hugmyndir sem væru spennandi. 

Í máli Sigurðar kom fram að við stýrum ekki því hvernig ytra umhverfið þróast og þar hafi horfur versnað talsvert mikið upp á síðkastið. „En hins vegar þá er mjög margt sem að við ráðum sjálf og það sem snýr að samkeppnishæfni.“ Hann nefndi til dæmis það sem snýr að raforkunni, umgjörð markaðarins, verðlagningu, sköttum, regluverki, ferlum, umgjörð nýsköpunar og menntamálum. „Þannig að það er fjölmargt sem að við getum í rauninni gert sjálf.“ 

Þarf sérstaklega að skoða flutningskostnaðinn

Sigurður sagðist fagna því mjög að heyra að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra væri að láta umhverfis- og orkustofnun gera greiningar. „Ég held að það sé full þörf á því og ég vona svo sannarlega að það sé sérstaklega verið að skoða líka flutningskostnaðinn og hvernig hann hefur þróast núna yfir svolítið tímabil og þar þarf eiginlega að greina hvað veldur og eftir atvikum að ráðast þá í nauðsynlegar breytingar á regluverki ef að það er vandamálið þarna.“ 

Fagnar því að ráðherra tali sérstaklega um að orka fari í verðmætasköpun

Þegar Sigurður var spurður ef hann væri forsætisráðherra hvernig myndir þú gera betur og hvaða einu ákvörðun myndi hann taka svaraði hann: „Ég held að það sem að iðnaðurinn sé svolítið að horfa á núna sé þessi heildstæða iðnaðarstefna sem að svona rammar einhvern veginn inn stefnumörkun í öðrum málaflokkum, með það að markmiði að efla samkeppnishæfnina. En mig langar að nota tækifærið og fagna því sérstaklega að við séum núna með ráðherra umhverfis- og orkumála sem að talar sérstaklega um að orka fari í verðmætasköpun. Við höfum ekki heyrt það í mörg ár og það er mjög gaman að heyra það aftur.“

Skerðingar á afhendingu raforku kostar samfélagið stórfé

Þá kom Sigurður inn á í tengslum við samkeppnishæfni að skerðingar á afhendingu raforku kosti ekki bara fyrirtækin heldur samfélagið stórfé í töpuðum útflutningstekjum. Hann sagði að þetta hafi verið fjórtán til sautján milljarðar á síðasta ári á fyrri hluta ársins og það væri mikið. „Við horfum líka á það hvernig staðan er í öðrum löndum hvað varðar ýmsa hvata, og það hefur auðvitað bein áhrif á samkeppnisstöðu fyrirtækja hér á landi.“ Í því samhengi nefndi hann ETS peninga sem ekki hafi fundist en um sé að ræða kerfi sem heldur utan um losun. „En fyrirtækin eru nú samt að greiða dálítið stórar fjárhæðir fyrir þessar heimildir. En við þekkjum það í öðrum löndum hvernig þessir fjármunir eru nýttir. Þessir fjármunir og aðrir, umhverfisskattar eða umhverfisgjöld, eru nýttir til þess að stuðla að nýsköpun, innleiðingu og fjárfestingum í stóriðjunni til þess að einmitt að ná tilsettum markmiðum.“ Þegar Sigurður var spurður hvort hann vildi sem forsætisráðherra finna ETS peningana svaraði hann því játandi og mundi fá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra með í lið til að finna peningana. 

Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá ársfundi Samáls. 

Myndir/BIG

Samal_arsfundur_2025-41Vigdís Diljá Óskarsdóttir stýrði umræðunum. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra,  Ásgrímur Sigurðsson framkvæmdastjóri steypuskála Fjarðaáls, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Guðmundur Ben Þorsteinsson, forstöðumaður mannauðs og skipulagsframmistöðu hjá Tesla Rd. 

Samal_arsfundur_2025-45

Samal_arsfundur_2025-48

Samal_arsfundur_2025-50

Samal_arsfundur_2025-47_1748959213245

Hér er hægt að nálgast upptöku af fundinum. Umræðurnar hefjast 1:16:40.

https://vimeo.com/event/5150273