Eftirlitsgjöld Matvælastofnunar tvöfaldast á skömmum tíma
Samtök fyrirtækja í landbúnaði, SAFL, lýsa yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun atvinnuvegaráðherra að samþykkja hækkun á gjaldskrá Matvælastofnunar (MAST) fyrir opinbert eftirlit um 30%.
Hækkunin nú kemur til viðbótar við umfangsmiklar gjaldskrárbreytingar sem tóku gildi síðasta sumar og leiddu þegar í stað til verulegs kostnaðarauka fyrir matvælaframleiðendur. Á aðeins 14 mánuðum hefur eftirlitsgjald í sláturhúsum tvöfaldast – með 109% hækkun – og gjald fyrir önnur verkefni hækkað um 47%. Leggst hækkunin misþungt á eftirlitsþega.
„Við erum að horfa upp á stökkbreytingu í eftirlitskostnaði matvælafyrirtækja og í sumum tilvikum margföldun frá því sem áður var,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL.
Þegar umræddar gjaldskrárbreytingar voru kynntar á sínum tíma voru yfirlýst markmið þau að auka gagnsæi og skýrleika og einfalda alla framsetningu, framkvæmd, stjórnsýslu og gjaldskrárbreytingar. „Fátt af þessu hefur gengið eftir. Framsetningin er sannarlega einfaldari, en á kostnað skýrleika og gagnsæis. Í mörgum tilvikum vita eftirlitsþegar ekki fyrir hvað þeir eru nákvæmlega að greiða og ómældur tími hefur farið í yfirlegu og leiðréttingar á útsendum reikningum,“ segir Margrét.
Í kjölfar breytinganna hefur MAST þurft að bæta við starfsfólki vegna aukins flækjustigs við reikningagerð. SAFL hafa verið gagnrýnin á nýtt fyrirkomulag og kallað eftir breyttu verklagi við eftirlit sem myndi draga úr kostnaði. Meðal annars hafa samtökin krafist þess að MAST fylgi eftir ákvæði laga um áhættuflokkun sláturhúsa, sem lögfest var árið 2019. Samkvæmt lögunum á áhættuflokkun að stýra tíðni og umfangi eftirlitsins.
„Enn í dag hefur MAST ekki lokið áhættuflokkun á einu einasta sláturhúsi. Framleiðendur eru því að greiða fyrir eftirlit sem er bæði óþarflega títt og kostnaðarsamt – í andstöðu við gildandi lög. Með tilliti til þessa og að markmiðum breytinganna hefur sannarlega ekki verið náð, vekur það furðu að atvinnuvegaráðherra samþykki svo umfangsmikla hækkun á gjaldskránni án frekari skoðunar,” segir Margrét.
mbl.is, 23. júní 2025.
Viðskiptablaðið, 23. júní 2025.