Embla Medical fær Útflutningsverðlaun forseta
Fyrirtækið Embla Medical sem er aðildarfyrirtæki SI hlaut í gær Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2025. Sveinn Sölvason, forstjóri fyrirtækisins veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Á myndinni er Sveinn ásamt forseta Íslands Höllu Tómasdóttur. Embla Medical er með starfsemi í 40 löndum með um 4.500 starfsmenn, þar af 700 manns í höfuðstöðvunum í Reykjavík.
Í tilkynningu segir að Embla Medical sé leiðandi alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki á sviði stoð- og stuðningstækja og móðurfélag Össurar. Félagið var stofnað með það að markmiði að styðja við frekari vöxt, enda hefur það haslað sér völl á fleiri sviðum heilbrigðistækni á undanförnum árum. Kjarninn er sem fyrr lausnir og þjónusta fyrir fólk með hreyfanleikaáskoranir. Upphafið má rekja til ársins 1971, þegar Össur Kristinsson stoðtækjafræðingur stofnaði stoðtækjaverkstæði á Íslandi. Fyrsta varan var sílikonhulsa sem vakti strax athygli á erlendum mörkuðum og lagði grunninn að að þeirri alþjóðlegu vegferð sem félagið hefur verið á síðan.
Þá kemur fram í tilkynningunni að á meðal helstu áfanga í sögu félagsins megi nefna skráningu á markað árið 1999, umfangsmikla alþjóðlega stækkun með kaupum á erlendum fyrirtækjum, og þróun hátæknilausna sem hlotið hafa fjölda alþjóðlegra verðlauna. Rannsóknir og vöruþróun hafi ávallt verið í forgrunni, og félagið eigi nú yfir 2.100 skráð einkaleyfi – fleiri en nokkuð annað íslenskt fyrirtæki á sviði lífvísinda.Tekjur félagsins hafi meira en tvöfaldast á síðustu tíu árum – úr 58,5 milljörðum króna árið 2014 í 118 milljarða árið 2024. Meirihluti tekna komi frá Bandaríkjunum og Evrópu og vaxandi hluti frá Asíumörkuðum. Þessi mikli vöxtur byggi á stöðugum fjárfestingum í rannsóknum og þróun, þar sem sjálfbærni og nýsköpun séu í forgrunni. Jafnframt segir að Embla Medical hafi einsett sér að bæta lífsgæði fólks með sérhæfðum heilbrigðislausnum og tryggu aðgengi að hágæða þjónustu um allan heim. Útflutningsverðlaunin séu því viðurkenning á þeirri alþjóðlegu sókn og framsýni sem hafi einkennt starfsemi félagsins í meira en hálfa öld.
Um Útflutningsverðlaun forseta Íslands
Tilgangurinn með veitingu Útflutningverðlauna forseta Íslands er að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem hafa náð sérstaklega góðum árangri í sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu erlendis. Veiting verðlaunanna tekur mið af verðmætisaukningu útflutnings, hlutdeild útflutnings í heildarsölu, markaðssetningu á nýjum mörkuðum og fleiru.
Útflutningsverðlaunin voru í gær veitt í 37. sinn en þau voru fyrst afhent árið 1989. Meðal fyrirtækja er hlotið hafa verðlaunin í gegnum tíðina eru Íslensk erfðagreining, Trefjar, Icelandair, Bláa lónið og Marel og á síðasta ári hlaut líftæknifyritækið Kerecis verðlaunin.
Í úthlutunarnefndinni sátu að þessu sinni Sif Gunnarsdóttir frá embætti forseta Íslands, Magnús Þór Torfason frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Katrín Olga Jóhannesdóttir frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Hildur Árnadóttir frá Íslandsstofu en Íslandsstofa ber ábyrgð á kostnaði og framkvæmd við verðlaunaveitinguna.
Halla Tómasdóttir og Sveinn Sölvason.