Fréttasafn



22. ágú. 2024 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki Starfsumhverfi

Engar vísbendingar um að vextir lækki í fyrirsjáanlegri framtíð

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í frétt mbl.is að ríkisstjórnin ætti að funda með Seðlabanka Íslands sem allra fyrst og fá ráðgjöf um það hvað ríkisvaldið þurfi að gera til að draga úr verðbólgu í kjölfar ákvörðunar peningastefndunefndar um óbreytta stýrivexti 9,25%. „Það eru dimm ský á lofti. Við erum að sjá hagvaxtarspána tekna niður, við erum að sjá spár um aukið atvinnuleysi miðað við það sem áður var talið og Seðlabankinn telur að verðbólgan verði þrálátari en áður var talið þrátt fyrir ýmsar aðgerðir. Þó að ákvörðun nefndarinnar um óbreytta vexti sé skiljanleg og í raun það sem allir áttu von á, þá kemur þessi harði tónn nefndarinnar á óvart. Það eru í raun engar vísbendingar um það að vextir lækki í fyrirsjáanlegri framtíð.“

Ekkert annað ráð en að byggja fleiri íbúðir

Í frétt mbl.is kemur fram að peningastefnunefnd segi að undirliggjandi verðbólga sé mikil og verðhækkanir séu á breiðum grunni, þótt húsnæðisliðurinn vegi enn þungt. Þá segir í frétt mbl.is að Sigurður hafi áhyggjur af því að með svona háum vöxtum séu minni líkur á þeirri húsnæðisuppbyggingu sem þarf til að draga úr verðbólgu á húsnæðismarkaði og ekkert annað vera til ráða á þeim markaði en að byggja fleiri íbúðir. Jafnframt er haft eftir Sigurði að hann sakni raunverulegra aðgerða af hálfu ríkis og sveitarfélaga til að fjölga íbúðum í byggingu. „Sveitarfélögin fara með skipulagsvaldið og framboð á lóðum og það er auðvitað forsenda þess að byggja. Í sjálfu sér skiljum við ekki alveg af hverju ríkið hefur ekki stigið niður fæti á mun ákveðnari hátt gagnvart sveitarfélögunum til þess að kalla fram breytingar á skipulagi í þágu meiri uppbyggingar.“ 

Seðlabankinn veiti ríkisstjórninni leiðsögn

Þá er haft eftir Sigurði í frétt mbl.is að allir aðilar þurfi að gera sitt til að draga úr verðbólgu og þar horfi SI mest á ríkið, sem þurfi að ráðast í aðgerðir til að styrkja framboðshlið hagkerfisins. Þá kemur fram að Sigurður vilji sjá forystumenn ríkisstjórnarinnar funda með Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra og fá ráðgjöf um hvað ríkið geti gert til að draga úr verðbólgu. „Það kæmi mér mjög á óvart ef að forystumenn ríkisstjórnarinnar myndu ekki eiga fund með seðlabankastjóra strax í dag til þess að ræða það hvernig hægt sé að bregðast við og grípa til aðgerða til þess að ná betri tökum á efnahagsmálum á Íslandi,“ segir Sigurður og útskýrir að hann eigi við að Seðlabankinn myndi veita ríkisstjórninni leiðsögn.

Kostnaðarsöm leið að halda vöxtum háum í langan tíma

Sigurður segir í frétt mbl.is að þessi leið, að halda vöxtum háum í langan tíma og kæla hagkerfið, sé kostnaðarsöm fyrir þjóðarbúið. „Það eru til aðrar leiðir sem eru mun mildari þannig að stjórnvöld þurfa vinna saman að því. Leiðin þar er auðvitað að ríkisvaldið stigi inn og létti undir með Seðlabankanum, eins og Seðlabankinn hefur kallað eftir.“

mbl.is, 21. ágúst 2024.