Fréttasafn



7. ágú. 2024 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki Mannvirki – félag verktaka Starfsumhverfi

Engin útboð fyrirsjáanleg og uppsagnir í haust

„Það er alveg klárt mál og er búið að vera svo síðan í fyrrahaust en þá urðu í raun allir jarðvinnu- og malbiksverktakar mjög varir við að verkefnum sem í boði voru fækkaði og hefur svo verið síðan,“ segir Sigþór Sigurðsson, formaður Mannvirkis - félag verktaka og framkvæmdastjóri Colas, í Morgunblaðinu spurður um samdrátt í greininni. Hann segir að þar sé fyrst og fremst Vegagerðinni um að kenna og vegna skorts á fjárveitingum frá Alþingi. 

Sigþór segir jafnframt í Morgunblaðinu að brýnt sé að fara að vinna á innviðaskuldinni og einnig þurfi fyrirtækin í greininni að hafa stöðugleika og fyrirsjáanleika í sinni starfsemi og að áætlanir séu trúverðugar. „Þeir bitu höfuðið af skömminni með því að fresta afgreiðslu samgönguáætlunar á Alþingi í vor og setja Vegagerðina í klemmu sem getur þannig ekki boðið út verkefni.“ Hann segir jafnframt að sér finnist skrýtið að stofnunin geti ekki haldið uppi dampi í vegagerð þótt ekki sé endanlega búið að njörva niður fjárheimildir. „Þetta er mikið hökt og högg fyrir fyrirtæki sem eru að reyna að halda samfellu í sínum rekstri.“

Þá segir Sigþór í Morgunblaðinu að áhrifin á fyrirtækin séu fyrst og fremst tekjusamdráttur. „Það er þegar mikill samdráttur í ár sem byrjaði raunar í fyrra, sérstaklega í malbikshlutanum. Það hefur verið mikill samdráttur frá árunum 2021 og 2022 sem voru góð ár. Það eru uppsagnir fyrirsjáanlegar í haust. Menn halda þokkalegum dampi yfir sumarið en það er ekkert að frétta af verkefnum haustsins og engin útboð fyrirsjáanleg.“ Hann bendir á að slæmt sé að missa frá sér vant starfsfólk, enda sé það ekki á hverju strái. 

Morgunblaðið / mbl.is, 24. júlí 2024.

Morgunbladid-24-07-2024