Erfitt að sjá ástæðu til að breyta lögum um íslensk lén
Að mati Gunnars Sigurðarsonar, viðskiptastjóra á iðnaðar- og hugverkasviði SI, er erfitt að sjá að ástæða sé til að gera breytingar á lögum um íslensk landshöfuðlén, þ.e. lén sem enda á „.is“. Þetta kemur fram í frétt Ásgeirs Ingvarssonar í Morgunblaðinu um áform innviðaráðuneytisins að breyta lögum um íslensk landshöfuðlén sem hafa verið í höndum Internets á Íslandi hf. (ISNIC).
Í fréttinni kemur fram að Gunnar segist eiga erfitt með að koma auga á að þörf sé fyrir fleiri og strangari reglur og að núgildandi lög veiti t.d. fullnægjandi heimildir til inngripa ef íslenskt lén er notað í ólöglegum tilgangi. „Það er þegar mikið eftirlit með þessu sviði og aðgerða- og kæruferli til staðar, og núverandi regluverk er þannig að umgjörðin er bæði með ofboðslega mörg belti og mörg axlabönd. Af útskýringum ráðuneytisins er erfitt að sjá nákvæmlega hvaða gloppur í lögunum þarf nauðsynlega að laga.“ Hann bendir á að fyrir um tveimur árum hafi ráðuneytið reynt að gera breytingar á lögunum en þær tillögur hafi ekki orðið að veruleika og að þær breytingar sem núna séu til skoðunar virðist sambærilegar.
Þá kemur fram að Gunnar segir ekki ólíklegt að ráðuneytið sé að reyna að bregðast við atvikum sem komið hafa upp endrum og sinnum og jafnvel ratað í fréttir þar sem erlendir aðilar opnuðu íslensk lén fyrir vefsíður þar sem hættulegum öfgaskoðunum hafi verið hampað eða glæpastarfsemi stunduð. Hann bendi hins vegar á að í þeim tilvikum hafi núgildandi regluverk þjónað sínu hlutverki vel og ekki sé annað að sjá en að bæði ISNIC og íslensk stjórnvöld hafi viðunandi valdheimildir. „Ráðuneytið þyrfti að útskýra betur hvaða raunverulegu vandamál eru til staðar sem gildandi lög taka ekki nægilega vel á.“
Einnig er rætt við Þór Jensen framkvæmdastjóra ISNIC sem segir félagið meðvitað um þá ábyrgð sem fylgir því að reka skráningarstofu landshöfuðlénsins .is. Hann bendir á að ISNIC hafi annast þetta hlutverk í 40 ár og gangi vel. „Orðspor .is-lénsins er gott og almenningur treystir okkur fyrir þessu mikilvæga hlutverki, og við viljum að sjálfsögðu fara vel með það traust.“
Morgunblaðið, 7. ágúst 2026.


