Fréttasafn



5. ágú. 2026 Almennar fréttir Samtök fyrirtækja í landbúnaði

ESB-umræðan kallar á svör en ekki slagorð

Nú er búið að setja þjóðina í þá stöðu að þurfa sjálf að kortleggja jafn tæknilega flókið ferli og endurvakning umsóknaraðildar er. Það er áþreifanleg eftirspurn frá fólki eftir meiri upplýsingum og skýrum svörum frá þeim sem bera pólitíska ábyrgð. Slagorð og loforðaflaumur á Tiktok er ekki það sem fólk þarf á að halda núna heldur fagleg umfjöllun. Þetta segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, í grein í Bændablaðinu með yfirskriftinni ESB-umræðan kallar á svör en ekki slagorð. Hún segir að skortur sé á pólitískri umræðu og bagalegt sé að á sama tíma og almenningur sé að reyna að átta sig á þessu stóra máli séu þeir 63 þingmenn sem þjóðin kaus til að setja sig inn í nákvæmlega svona mál og miðla upplýsingum til kjósenda í sumarhléi. Margrét segir Alþingi ekki virkan vettvang umræðu um málið á þeim tímapunkti þegar þörfin fyrir skýringar og pólitíska ábyrgð hafi líklega aldrei verið meiri. 

Margrét segir jafnframt í greininni að íslenskur landbúnaður búi við nokkuð sérstakar aðstæður sem beri að taka alvarlega. Og tollverndin sé mikilvægur hluti af þeirri umgjörð sem geri innlendri framleiðslu kleift að starfa við íslenskar aðstæður. Ef tollvernd félli niður við ESB-aðild, án þess að sambærilegar mótvægisaðgerðir kæmu í staðinn, yrðu afleiðingarnar alvarlegar og myndu líklega ríða mörgum greinum landbúnaðarins að fullu. „Fyrir íslenskan landbúnað skiptir mestu að umræðan um ESB-aðild fari ekki fram á forsendum óskhyggju. Það þarf að liggja fyrir hvaða kröfur íslenska ríkið mun setja í aðildarviðræðum við ESB hvað varðar tollvernd, dýraheilbrigði, stuðningskerfi o.fl. Áður en þjóðinni er gert að taka afstöðu þarf að svara þessum spurningum af fullri alvöru.“

Á vef Bændablaðsins er hægt að lesa greinina í heild sinni.

Bændablaðið, 5. ágúst 2026.