Fréttasafn



2. nóv. 2020 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Fagnar áformum stjórnvalda um frekari efnahagsaðgerðir

Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í hádegisfréttum Bylgjunnar þar sem kemur fram að hann fagnar áformum stjórnvalda um frekari efnahagsaðgerðir en vill þó að stjórnvöld leggi meiri áherslu á að hvetja til eftirspurnar fremur en að einblína aðeins á að tryggja framboð þegar yfir líkur, þá sé nauðsynlegt að útvíkka úrræði um lokunarstyrki. „Okkur lýst vel á það að ríkisstjórnin skuli bregðast við. Þetta eru ákveðin varnarviðbrögð við stöðunni og sú sviðsmynd var uppi í vor að ástandið myndi ganga yfir á nokkrum vikum eða mánuðum og það hefur því miður ekki gengið eftir. Þannig að þetta dregst á langinn og þá er mjög jákvætt að ríkisstjórnin skuli viðurkenna þá stöðu og bregðast við á þennan hátt.“ 

Lokunarstyrkir voru of þröngt skilgreindir

Í fréttinni kemur fram að með útvíkkun tekjufallsstyrkja sé gert ráð fyrir að rekstraraðili geti að hámarki fengið sautján og hálfa milljón í styrk. „Þetta hjálpar auðvitað verulega til en þetta kannski dugar skammt til þess að mæta því áfalli sem að þessi fyrirtæki verða fyrir,“ segir hann en fagnar því engu að síður að víkka eigi út úrræðið um tekjufallsstyrki. „Ég vona svo sannarlega að það sama verði gert við lokunarstyrkina vegna þess að þeir voru of þröngt skilgreindir þannig að of fáir hafa getað nýtt sér þá. Það er að segja fyrirtæki eða starfsemi sem að hefur þurft að loka vegna þess að til dæmis allir aðrir í kringum þá, sem sagt viðskiptavinir, hafa þurft að loka, þeir hafa ekki fallið þarna undir.“ 

Hvetja til eftirspurnar líkt og verkefnin Allir vinna og Láttu það ganga

Þá kemur fram í fréttinni að viðspyrnustyrkirnir séu einnig jákvæð nýung sem miði að því að halda uppi framboði, þannig að framboð verði til staðar þegar að eftirspurnin tekur við sér á ný. Sigurður sér þó einnig tækifæri í því að hvetja til eftirspurnar. „Við viljum ekki síður leggja áherslu á hina hliðina sem er sú að hvetja til eftirspurnar þar sem að framboð er nægt. Þar er ég til dæmis að vísa í verkefni sem að okkur finnst vel heppnuð eins og Allir vinna sem er endurgreiðsla á virðisaukaskatti vegna vinnu iðnaðarmanna, og eins markaðsátakið Láttu það ganga, sem að stuðlar að vitundarvakningu um þá keðjuverkun sem fer af stað þegar við skiptum við hvert annað. Svoleiðis að á þessu eru tvær hliðar og ég held að það séu tækifæri hjá stjórnvöldum að horfa meira á þessa seinni hlið, sem sagt að hvetja til eftirspurnar þar sem að framboðið er nægt.“

Vísir/Bylgjan, 31. október 2020.