Fara þarf nýjar leiðir í vegaframkvæmdum á Íslandi
Stórverkefni á Íslandi í vegagerð verða ekki að veruleika nema við förum nýjar leiðir segir Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas Ísland ehf. og formaður Mannvirkis, félags verktaka innan Samtaka iðnaðarins, í grein sinni á Vísi undir yfirskriftinni Kyrrstöðuna verður að rjúfa! Lausn fyrir verðandi innviðaráðherra. Hann skorar á alla verðandi þingmenn að kynna sér þessi mál í þaula og ekki síst verðandi innviðaráðherra því kyrrstöðuna þurfi að rjúfa.
Ísland skortir sárlega nýja og endurbætta innviði
Sigþór segir í greininni að Ísland skorti sárlega nýja og endurbætta innviði. Þörfin sé svo mikil að umræðan virðist yfirleitt festast í deilum um hvað er mest aðkallandi. Lítið verði úr raunverulegum framkvæmdum. Fyrst megi nefna megin akstursleiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu þar sem enn sé ekki búið að aðgreina akstursstefnur. Annað dæmi sé Sundabraut sem velkst hafi um í kerfinu áratugum saman, kallað sé eftir jarðgöngum víða um land og aðkallandi sé að byggja stórar og miklar brýr yfir mörg fljót. Á sama tíma og kallað sé eftir nýjum samgöngubótum um allt land sé óumdeilt að vegakerfið okkar sé ein af lífæðum samfélagsins og í fyrri grein hafi hann fjallað um hvernig það hafi grotnað niður vegna skorts á fjárveitingum til Vegagerðarinnar.
Hvernig sem viðrar er skorið niður í vegagerð
Þá segir Sigþór í greininni að þau sem starfi í vegagerð og sinni þessum verkefnum öllum, viðhaldi sem nýframkvæmdum, hafi áratugum saman talað fyrir stöðugleika í verkframboði, að unnið sé jafnt og þétt og að hvert verkið taki við af öðru. Hann segir að stjórnmálamenn tali oftast á sömu nótum og hafi margir stóra drauma og stórfelld áform, sérlega þegar þeir séu nýteknir við völdum. En svo renni upp ískaldur veruleikinn, það sé eitthvert áfallið og það kreppi að og þá sé einfaldast að skera niður í verklegum framkvæmdum. Eða hin hliðin, það sé svo mikil þensla að ríkið þurfi að draga saman og haldi að sér höndum. Hvernig sem viðrar sé sem sagt skorið niður í vegagerð og afleiðingarnar blasi nú öllum við.
Vegagerðin látin frysta öll útboð og verktakar sitja eftir í myrkrinu
Í greininni segir Sigþór jafnframt að síðasta ríkisstjórn hafi gengið með þá hugmynd í maga að svokölluð PPP verkefni (samstarf einkaaðila við ríkið um byggingu mannvirkis) væri töfralausn fyrir Ísland og geti sú aðferðarfræði reynst góð í mörgum tilvikum. „Við eigum eina slíka framkvæmd sem var til fyrirmyndar en það var smíði Hvalfjarðarganga sem félagið Spölur átti og rak þar til verkefnið var að fullu upp greitt og var þá skilað til ríkisins.“ Sigþór segir að PPP aðferðarfræðin sé að mörgu leyti flókin og að leggja af stað með rúmlega hálfkláraða hugmynd eins gert hafi verið nú í tvígang hafi ekki greitt götu þessara verkefna. Annars vegar hafi vegagerð um Hornafjarðarfljót verið sett af stað sem slíkt verkefni en endaði svo á að vera rekið með almennum fjárheimildum Vegagerðarinnar sem síðan hafi valdið einhverskonar pólitísku uppnámi. Vegna þessa hafi Vegagerðin verið látin frysta öll útboð og verktakar sitji eftir í myrkrinu um hvað sé framundan. Einnig nefnir Sigþór byggingu brúar yfir Ölfusá þar sem erlendum verktökum hafi verið boðið að borði en létu sig einn af öðrum hverfa þegar skilmálar verkkaupans komu í ljós. Megi þar sem dæmi nefna kröfur um fjármögnun, að áhættan af gengi krónu skyldi fylgja með í pakkanum (fjármögnun og greiðslur í íslenskum krónum en stór hluti framkvæmdakostnaðar í erlendri mynt) og notkun á íslenskum stöðlum en ekki erlendum á borð við FIDIC.
Hægt að horfa til Danmerkur og Færeyja
Þá segir Sigþór í greininni að nú þurfi að horfa til framtíðar og höggva á þessa hnúta. „Ég tek eftir að mörgum stjórnmálamönnum er tíðrætt um fyrirmyndir frá Danmörku og við eigum einmitt að fara þangað til að fá góða fyrirmynd um það hvernig tækla á stór verkefni í innviðauppbyggingu.“ Þá segir hann að ekki þurfi að fara alla leið yfir Atlandshafið til að leita fyrirmynda. „Bræður okkar og systur í Færeyjum hafa farið sömu leið. Í Færeyjum er erfitt að brúa á milli allra eyjanna þannig að þau (þessi 50.000 manna þjóð) hafa ráðist í að grafa göng og það engin smágöng. Sum þeirra með hringtorgi hundruðum metra undir sjávarmáli til að geta tengt saman fleiri byggðir. Félag þeirra Færeyinga um neðansjávargöngin (þau eru nú orðin fjögur) heitir P/F Tunnil.“
Lífeyrissjóðir heppilegir eigendur að mannvirkjum
Sigþór segir að hér á landi sé vert að skoða þessa aðferðarfræði. „Við erum ekki milljóna þjóð og það er galið að skattgreiðendur nútímans borgi, með fjárlögum örfárra ára, þau mannvirki sem koma til með að standa og nýtast næstu 200 árin. Ef við ætlum nokkru sinni að eignast Sundabraut, grafa göng um allt land og brúa Skjálfandafljót, Ölfusá og Jökulsá á Fjöllum, svo dæmi séu nefnd, þarf að fara sambærilega leið. Hér á Íslandi væri dauðafæri að fá lífeyrissjóði til liðs við félagið til dæmis með eigið fé á móti ríkinu en slíkir sjóðir eru heppilegir eigendur að mannvirkjum sem greiða sig upp á áratugum með jöfnu tekjustreymi. Þar sem ekki er næg áætluð umferð til að greiða niður mannvirkið þarf að huga að fleiri þáttum en hefjumst handa á þeim allra arðbærustu. Á sama tíma á ekki að útiloka þátttöku einkaaðila að sambærilegum verkefnum en mitt mat er að mesta sáttin muni nást með eiganda sem erum við sjálf þ.e. ríki og lífeyrissjóðir.“
Hér er hægt að lesa grein Sigþórs í heild sinni.
Vísir, 4. nóvember 2024.