Félagsfundur mannvirkjafyrirtækja á Austurlandi
Samtök iðnaðarins héldu fund mannvirkjafyrirtækja á Austurlandi fyrir skömmu í Gistihúsinu á Egilsstöðum.
Kristján Daníel Sigurbergsson og Þorgils Helgason, viðskiptastjórar á mannvirkjasviði SI, tóku fyrir ýmis mál sem brenna á félagsmönnum sviðsins. Þeir fóru meðal annars yfir aukna gjaldheimtu sveitarfélaga af uppbyggingu á sama tíma og stjórnvöld kalla eftir auknum krafti í uppbyggingu á hagstæðu húsnæði. Eins var tekin fyrir ítrekun Meistaradeildar SI til fjármálaráðuneytisins að hækka aftur endurgreiðslu vsk af vinnu iðnaðarmanna en sú lækkun sem var gerð fyrirvaralaust 1. júlí 2023 hefur skilað sér í verri heimtum fyrir ríkissjóð og ýtt undir svarta atvinnustarfsemi. Góður rómur var gerður að fundinum meðal félagsmannanna.
Félagsmenn mannvirkjafyrirtækja á Austurlandi komu saman á Egilsstöðum.
Þorgils Helgason flutti erindi á fundinum.

