Fréttasafn



10. mar. 2026 Almennar fréttir

Finnum samhljóminn

Við þurfum að byggja upp traust milli ólíkra aðila og vinna á sameiginlegum grunni. Þannig getum við stigið hnitmiðuð, stór skref sem laða að fjárfestingu, kveða niður verðbólgu og styrkja innviði svo dæmi séu tekin. Við höfum gert þetta áður. Mestu framfarir Íslands hafa orðið þegar samfélagið allt tekur stórar ákvarðanir um sameiginlega vegferð. Þannig höfum við beislað endurnýjanlega orku, byggt trausta samgönguinnviði, tryggt öfluga menntun og skapað frjóan jarðveg fyrir atvinnusköpun. Þjóðin var þá bæði fámennari og fátækari. En við fundum samhljóminn. Þetta sagði Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í ávarpi sínu á Iðnþingi 2026. Hann sagði að í bókinni Veröld sem var lýsi Stefan Zweig gullöld öryggisins sem öllum virtist óhagganleg en reyndist vera svikalogn. Fyrir átta árum vísaði Þórdís Kolbrún, þáverandi iðnaðarráðherra til þessa hér á Iðnþingi. Þá óraði okkur ekki fyrir þeim miklu breytingum sem síðan hafa orðið í heimsmálunum. Óvissa hefur tekið við af stöðugleika og þau ráð sem gáfu vel um langt skeið duga ekki lengur. „Eitt hefur ekki breyst. Við byggjum okkar lífskjör á verðmætasköpun. Við eigum einfaldlega allt undir að hér sé öflugur iðnaður og greiður aðgangur að mörkuðum. Þetta er landsmönnum alveg ljóst en í nýlegri könnun sögðust níu af hverjum tíu, telja að íslenskur iðnaður hafi jákvæð áhrif á samfélagið í heild. Það er samhljómur um að iðnaður sé grunnur að lífskjarabótum og framförum hér í landinu.“ Sigurður sagði að sterk samkeppnishæfni væri ekki sjálfgefin og víða þrengist að. „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.“

Samhljómur í heiminum hefur dofnað

Þá sagði Sigurður í ávarpi sínu að sá samhljómur sem við skynjuðum í heiminum um langt skeið hafi dofnað. Aukið spennustig í samskiptum ríkja hefur bein áhrif á íslensk fyrirtæki. „Við þurfum að hafa meira fyrir því að ná árangri á óvissutímum og verja okkar stöðu. Tollastríð og aðrar verndarráðstafanir hafa áhrif á framleiðslu og viðskipti og stór hluti okkar tíma hjá SI hefur farið í alþjóðlega hagsmunagæslu undanfarin misseri.“ Hann sagði aukna áherslu vera á öryggis- og varnarmál og aukinn viðnámsþrótt og spurði hvernig við værum búin undir áföll vegna náttúruhamfara eða af mannavöldum en á sama tíma væru meiri tækniframfarir en við höfum séð lengi. „Það kann að ráða úrslitum um lífskjör okkar til framtíðar hversu vel okkur tekst til að sækja tækifærin á sviði gervigreindar. Þessu stýrum við ekki en við verðum að haga seglum eftir vindi.“

Samkeppnishæfni verði sett í algjöran forgang

Sigurður sagði að til þess að Ísland verði áfram í fremstu röð þurfum við að setja samkeppnishæfni í algjöran forgang og ryðja heimatilbúnum hindrunum úr vegi. „Við þurfum að efla hagsmunagæslu. Hér þarf að stilla saman strengina, finna samhljóminn og breyta vilja í verk.“ Hann nefndi að í dagskrá þingsins hafi verið nefnd ýmis dæmi um heimatilbúnar hindranir. „Við þekkjum fleiri.“ Hann sagði að við hefðum ekki náð tökum á verðbólgu. Atvinnuleysi væri að aukast og það væru skýr merki um kólnun hagkerfisins. „Það hefur ekki tekist að byggja íbúðir í takt við þarfir vaxandi samfélags. Of lengi hefur verið beðið eftir aukinni orkuöflun. Ýmsar fleiri heimatilbúnar hindranir gera það að verkum að við náum ekki þeim árangri sem við ættum að ná. Þetta er ekki náttúrulögmál, þetta er úrlausnarefni.“

Mörg dæmi um árangur þegar samhljómur er fundinn

Í ávarpi sínu sagði Sigurður að mörg dæmi væru um árangur sem við höfum náð þegar við fundum samhljóminn og nefndi hugverkaiðnað sem hafi vaxið hratt. „Drífandi frumkvöðlar hafa látið hugmyndir sínar verða að veruleika og skapað verðmæt störf. Við sáum hér áðan að útflutningur hugverkaiðnaðar var meiri en útflutningur sjávarútvegs á síðasta ári og vöxturinn heldur áfram. Við lok þessa áratugar gæti hugverkaiðnaður verið verðmætasta útflutningsstoðin ef rétt er á málum haldið.“ Hann sagði að með því að finna samhljóminn jhafi tekist að stórauka aðsókn í iðnnám þannig að nú þurfi að klára uppbyggingu verknámsskóla svo hægt sé að taka við öllum áhugasömum nemendum. „Þetta er ekki tilviljun. Við þurfum að finna samhljóminn á fleiri sviðum.“ Þá sagði hann að við þyrftum öfluga hagsmunagæslu á umbrotatímum, ekki aðeins til að verjast heldur til að sækja fram og ná árangri, sækja tækifærin.

Fimm meginverkefni í öflugri hagsmunagæslu

Sigurður sagði öfluga hagsmunagæslu snúast um fimm meginverkefni.

I. Að viðhalda greiðum aðgangi að mörkuðum fyrir helstu útflutningsvörur og -þjónustu Íslands.

II. Að stórefla viðnámsþrótt samfélagsins og tryggja öryggis- og varnarhagsmuni landsins í breyttum heimi.

III. Að tala máli Íslands gagnvart Evrópusambandinu og fá skilning á íslenskum aðstæðum áður en regluverk er innleitt.

IV. Að sækja tækifærin sem blasa við í tengslum við gervigreind og stafræna innviði.

V. Og við þurfum að taka til heimafyrir og ryðja heimatilbúnum hindrunum úr vegi.

Hann sagði þetta vera vegvísi að samkeppnishæfara Íslandi. „Hagsmunagæslan felst í því að finna samhljóminn, hér heima og vera samstillt í að gæta hagsmuna Íslands úti í heimi.“

Hver og einn spilar sína nótu á réttum tíma með hinum

Í niðurlagi ávarp síns sagði Sigurður að í upphafi Iðnþings hafi gestir séð hljómsveit stilla saman strengi. „Við sáum handboltalandsliðið okkar ná frábærum árangri. Við sjáum okkar mikilvægu viðbragðsaðila vinna þétt saman þegar á reynir. Samhljómur þýðir ekki að allir spili sömu nótuna heldur að hver og einn spili sína nótu á réttum tíma með hinum.“ Hann sagði að það sem væri aðkallandi núna væri að hagsmunasamtök, atvinnurekendur, verkalýðsfélög, stjórnvöld – já og við öll – komum með okkar kraft að borðinu. „Vinnum saman að framförum.“ En hann sagði jafnframt að samfélag í samhljómi væri ekki skoðanalaust. Samfélag sem hafi náð samhljómi taki mið af ólíkum sjónarmiðum og ákvarðanir séu vel ígrundaðar en það nái niðurstöðu út frá sameiginlegum hagsmunum. „Og það framkvæmir samkvæmt þeim. Þannig tökum við ákvarðanir sem spanna fleiri en ein fjárlög, fleiri en eitt kjörtímabil, skila ávinningi í áratugi, brúa aldir. Ég vil ljúka þessu glæsilega og fjölmennasta Iðnþingi frá upphafi með hvatningu til okkar allra um að stilla saman strengina og finna samhljóminn. Þannig vinnum við saman að framfaramálum fyrir okkur og komandi kynslóðir.“

Hér er hægt að nálgast upptöku af ávarpi Sigurðar:

https://vimeo.com/1171006338?fl=ip&fe=ec


Myndir/BIG

Si_idnthing_2026-96_1773154583979

Si_idnthing_2026-99

Si_idnthing_2026-97

Si_idnthing_2026-103