Fréttasafn



31. jan. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Fjölmennur fundur um ráðningar erlendra sérfræðinga

Fjölmennt var á fundi Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og Samtaka iðnaðarins þar sem fjallað var um það sem er nauðsynlegt að hafa í huga við ráðningu og móttöku erlendra sérfræðinga til landsins. Á fundinum kom meðal annars fram að samkvæmt greiningu SI þarf um 9.000 sérfræðinga til starfa í hugverkaiðnaði ef vaxtaáætlanir fyrirtækja í iðnaðinum eiga að ná fram að ganga og ljóst að mikið af þeim sérfræðingum munu þurfa að koma erlendis frá.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flutti opnunarávarp.  Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, flutti erindi með yfirskriftinni Mannauður - auðlind hugverkaiðnaðar.  Í pallborðsumræðum ræddu Stacey Katz, fjármálastjóri Marel, Elín María Björnsdóttir, mannauðsstjóri Controlant, og Erna Arnardóttir, mannauðsstjóri CCP, um reynslu af ráðningarferli og aðlögun. Edda Bergsveinsdóttir, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun, flutti erindi um hvað þarf að hafa í huga varðandi umsóknir um atvinnuleyfi. Einar Örn Ævarsson, framkvæmdastjóri Xpat, flutti erindi sem hann nefndi Aðlögun, búferlaflutningar, makinn og gæludýrið. Gunnar Zoëga, forstjóri Opinna kerfa og formaður SUT, var fundarstjóri.  

Image-044-

Image-03E-

Image-038-

Image-020-

Image-010-

Image-046-

Image-048-

Image-04A-