Fréttasafn



15. júl. 2026 Almennar fréttir

Fjölmörg tækifæri á Íslandi til að auka hagsæld

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í nýjum kaffispjallsþætti Þjóðmála að tækifærin séu fjölmörg á Íslandi til að auka hagsæld. Auk þess að ræða um tækifærin og framtíðina hér á landi ræðir þáttastjórnandinn Gísli Freyr Valdórsson við Sigurð um hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í hörðu alþjóðlegu umhverfi, þörfina á því að taka stórar ákvarðanir sambærilegar þeim sem teknar voru áður til að efla hagsæld og lífsgæði hér á landi, hvernig alþjóðlegt viðskiptaumhverfi er að breytast og um viðhorf atvinnulífsins til aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Hér er hægt að nálgast þáttinn.