Fréttasafn



9. mar. 2026 Almennar fréttir

Flóknara rekstrarumhverfi fyrirtækja hér heima en erlendis

Þorsteinn Víglundsson, nýkjörinn formaður SI, er í viðtali hjá Kristjáni Kristjánssyni á Sprengisandi á Bylgjunni um stöðuna í efnahagslífinu og alþjóðamálum. Þorsteinn segir að það séu margskonar áskoranir í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja en að heilt yfir sé hægt að segja að íslenskt hagkerfi sé óstöðugt. „Við erum alltaf að glíma við háa verðbólgu og háa vexti, enda gengið verið kannski óvenju stöðugt undanfarin ár hjá okkur. En þetta eru ekki góð skilyrði fyrir atvinnulífið í augnablikinu og við sjáum líka að hagkerfið er að kólna. Atvinnuleysi fer vaxandi. Við erum að sjá síðan óvissu auðvitað, bara nú síðast í stríðsátökum í Mið-Austurlöndunum og auðvitað tollastríð sem búið er að fylgja Trump eftir komu hans í Hvíta húsið aftur. Allt rennur þetta í sömu áttina einhvern veginn, að rekstrarumhverfið bæði hér heima fyrir og erlendis er að verða flóknara.“ 

Þorsteinn segir að það sé lykilatriði fyrir okkur hér að horfa þá til þess hvað við getum gert sjálf og hvað sé í okkar höndum. „Við ráðum því auðvitað ekki á endanum hvað gerist í Hvíta húsinu eða hvernig hrávörumarkaður er að þróast. En við erum með alls konar heimatilbúin vandamál. Við erum með flókið regluverk sem við ræddum talsvert mikið á Iðnþingi. Það er margt sem við getum tekið á þar. Við þekkjum það mætavel. Við höfum gengið allt of langt í innleiðingu til dæmis.“ Hann segir að eitt sé að gagnrýna Evrópusambandið fyrir sitt regluverk, sem raunar standi nú til að einfalda. „Innleiðingin er kannski í óvenjulegri stöðu þar sem við erum ennþá að innleiða flókna reglugerð á sama tíma og Evrópusambandið er eiginlega búið að kynna arftaka þeirra. Það setur okkur í sérkennilega stöðu. En við vitum alveg, myndi ég segja, upp á okkur skömmina að við höfum gert þetta flóknara en við höfum þurft að gera. Við höfum tilhneigingu til þess að gullhúða. Ég held í svona um það bil helmingi tilvika að minnsta kosti séum við að gullhúða regluverkið. Við erum ekki að ýta á undanþágur, til dæmis gagnvart stærð fyrirtækja sem eru fyrir hendi.“ 

Hér er hægt að nálgast viðtalið við Þorstein í heild sinni. 

Vísir/Bylgjan, 8. mars 2026.