Fréttasafn



10. feb. 2026 Almennar fréttir

Framboð til stjórnar SI

Framboðsfrestur til stjórnar Samtaka iðnaðarins er liðinn. Tólf framboð bárust. Eitt framboð barst til formanns SI og ellefu framboð í fimm stjórnarsæti. Aðalfundur SI verður haldinn fimmtudaginn 5. mars og kosning sem er rafræn hefst 19. febrúar.

Framboð til formanns 

Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins

ThosteinnViglunds_806A4011

Kæri félagsmaður.

Vaxandi óvissa einkennir starfsumhverfi iðnfyrirtækja nú, hvort sem litið er til útflutningsfyrirtækja eða þeirra sem starfa fyrst og fremst á innanlandsmarkaði. Á alþjóðavettvangi veldur aukinn ófriður óvissu og við sjáum viðskiptahagsmunum beitt óhikaði í samskiptum við ríki sem áður töldust traustir bandamenn. Hér heima mætir okkur hátt vaxtastig, mikil verðbólgu og þungt regluverk.

Með áherslu á einföldun regluverks, aukna skilvirkni í rekstri hins opinbera, öflugri innviðafjárfestingu og sterkara hvatakerfi nýsköpunar er nauðsynlegt að bæta innra og ytra umhverfi fyrirtækja í fjölbreyttum greinum iðnaðar verulega og styrkja þannig grundvöll íslensks efnahagslífs. Með þeim hætti getum við unnið gegn neikvæðum áhrifum óvissu og óhagstæðra ytri aðstæðna á íslenskt efnahagslíf.

Þetta þarf ekki að vera svona flókið.

Íslenskur iðnaður er og hefur verið kjölfesta í efnahagslífi þjóðarinnar. Iðnaður á stóran þátt í stórbættum lífskjörum hér á landi. Helstu tækifæri okkar liggja í áframhaldandi verðmætasköpun iðnaðar og ég tel okkur hafa þar fjölmörg sóknartækifæri.

Það er mikilvægt að við nýtum þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir nú til að ráðast í nauðsynlegar umbætur á starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja. Krísur valda ekki aðeins óvissu heldur skapa einnig tækifæri til breytinga.

Samtök iðnaðarins eru öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi. Styrk sinn sækja þau til þess fjölda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi atvinnurekenda sem eiga aðild að samtökunum. Á undanförnum árum höfum við náð góðum árangri í starfi samtakanna, bæði inn á við með fjölgun félagsmanna, en ekki síður út á við með fjölmörgum tillögum til úrbóta til stjórnvalda sem á hefur verið hlustað.

Sjálfur er ég alinn upp í iðnaði. Ég hef síðastliðin sex ár starfað sem forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins, móðurfélags BM Vallá ehf og BjörgunSement ehf, en hef auk þess að baki þriggja áratuga reynslu við stjórn fyrirtækja og hagsmunasamtaka, þar á meðal sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Að auki sat ég fjögur ár á Alþingi og gegndi stöðu Félagsmálaráðherra. Ég hef jafnframt setið í stjórn Samtaka iðnaðarins síðastliðin þrjú ár.

Ég vil leggja mitt af mörkum til að bregðast við þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir og tryggja áframhaldandi metnað og árangur í starfi Samtaka iðnaðarins. Ég óska því eftir stuðningi þínum í framboði mínu til formanns Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára.

 

Framboð til stjórnarsetu

Bergþóra Halldórsdóttir, Borealis Data Center / Yfirlögfræðingur og hagaðilatengsl

Bergthora-Halldorsdottir_1770718492065

Ég hef óþrjótandi áhuga á að taka þátt í að bæta og efla starfsumhverfi íslensks iðnaðar og þar með undirstöður verðmætasköpunar á Íslandi. Ég starfa sem yfirlögfræðingur og stjórnandi hagaðilatengsla hjá Borealis Data Center, sem á og rekur gagnaver á Blönduósi, í Reykjanesbæ, í Reykjavík og í Finnlandi. Áður hef ég aflað mér víðtækrar reynslu af störfum fyrir atvinnulífið á breiðum grunni, meðal annars hjá Samtökum atvinnulífsins, Íslandsstofu og Samtökum iðnaðarins.

Undanfarið hef ég gegnt stöðu ritara stjórnar Samtaka iðnaðarins og jafnframt átt sæti í stjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd iðnaðarins. Þá sit ég í Tækni- og hugverkaráði Samtaka iðnaðarins en hef einnig stýrt stefnumótun fyrir aðrar greinar innan samtakanna og þekki því vel til þeirra fjölbreyttu áherslna og hagsmuna sem þar eru undir.

Samtök iðnaðarins hafa verið óþreytandi í að hvetja til umbóta í starfsumhverfi fyrirtækja hér á landi og aukinnar samkeppnishæfni Íslands, og ljóst er að áfram þarf að vinna að þeim verkefnum af elju. Þótt Ísland skori hátt í ýmsum alþjóðlegum samanburði getum við gert mun betur þegar kemur að skipulagi, skilvirkni stjórnsýslunnar og því hversu aðlaðandi Ísland er fyrir erlenda fjárfestingu og alþjóðleg viðskipti. Ég er vel kunnug þeim áskorunum sem íslensk fyrirtæki standa frammi fyrir í samskiptum við hið opinbera og við eftirfylgni laga og reglna, og veit hve mikilvægt er að starfsumhverfi fyrirtækja sé einfalt, skilvirkt og fyrirsjáanlegt svo tíma og verðmætum sé ekki eytt til einskis.

Ég tel mig vel til þess fallna að styðja áfram við mikilvæga hagsmunagæslu Samtaka iðnaðarins sem stjórnarmaður og tel mig hafa sýnt hæfni mína til þess í störfum mínum á vettvangi stjórnar hingað til. Það er mér því mikil ánægja að bjóða mig áfram fram til setu í stjórn Samtaka iðnaðarins og leggja mitt af mörkum til að viðhalda sterkri stöðu samtakanna og knýja áfram umbætur í þágu íslensks atvinnulífs og samfélags.

 

Eðvarð Ingi Björgvinsson, framkvæmdastjóri Héðins

EdvardKæru félagar,

Ég heiti Eðvarð Ingi Björgvinsson, er fæddur árið 1986 og starfa í dag sem framkvæmdastjóri Héðins þar sem ég hef unnið í yfir 16 ár. Ég hóf fyrst störf hjá Héðni sem vélvirki í skipaþjónustu, tók síðar við starfi deildarstjóra og nú síðustu þrjú ár hef ég starfað sem framkvæmdastjóri félagsins. Fyrirtækið er með mikla sögu og hefur sterkar rætur í sjávarútvegi, iðnaði og byggingageiranum. Hjá Héðni starfa um 170 manns og er mikil áhersla lögð á nýsköpun og lausnir sem leiða til bættar nýtingar á auðlindum.

Það er mikilvægt að standa vörð um íslenskan iðnað og sjaldan hafa utanaðkomandi þættir haft jafn mikil áhrif á greinarnar okkar með ríkjandi óvissu. Mikilvægt er að snúa vörn í sókn og nýta þau fjölmörgu tækifæri sem bíða okkar í íslenskum iðnaði með nýsköpun í fararbroddi.
Íþyngjandi kröfur og flókið regluverk er að gera mörgum fyrirtækjum erfitt fyrir í þátttöku verkefna með minnkandi samkeppni og auknum kostnaði. Þetta er eitthvað sem við öll höfum hagsmuni að gæta og stjórn SI hefur sterka rödd til að tryggja þá hagsmuni.

Ég tel að reynsla mín og þekking geti komið að góðum notum til að gera það góða starf sem stjórn SI hefur unnið enn betra og því býð ég mig fram til stjórnarsetu.

 

Freyr Friðriksson, eigandi og stjórnarformaður KAPP

Freyr-Fridriksson

Kæru félagar í Samtökum iðnaðarins,
Ég hef tekið þá ákvörðun að gefa kost á mér til setu í stjórn Samtaka iðnaðarins á komandi Iðnþingi.

Í nærri þrjá áratugi hef ég starfað í íslenskum iðnaði, fyrst sem frumkvöðull og síðar sem stjórnandi og eigandi fyrirtækja sem byggja á tækni, þjónustu og verðmætasköpun. Ég stofnaði KAPP ásamt eiginkonu minni með tvær hendur tómar og hef síðan þá notið þeirra forréttinda að fá að byggja upp samstæðu sem starfar í dag á Íslandi, í Noregi og í Bandaríkjunum, með yfir 100 starfsmenn og fjölbreyttan viðskiptavinahóp í sjávarútvegi, kjúklingaiðnaði, matvælaframleiðslu, verslun og öðrum iðnaði.

Á síðustu árum hef ég markvisst unnið að alþjóðlegri uppbyggingu, nýsköpun og eflingu þjónustu, bæði með innri vexti og með sameiningum á fyrirtækjum. Sú vegferð hefur kennt mér mikilvægi stöðugleika, skýrrar stefnu og þess að rekstrarumhverfi fyrirtækja sé samkeppnishæft. Ekki aðeins innanlands heldur einnig í samanburði við þau lönd sem við keppum við á erlendum mörkuðum.

Ég hef alla tíð haft mikla trú á hlutverki Samtaka iðnaðarins. Samtökin skipta sköpum fyrir sameiginlega hagsmunagæslu, málefnalega umræðu og skýra sýn á framtíð íslensks atvinnulífs. Í því samhengi vil ég leggja sérstaka áherslu á:
1. Að efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar og skapa skilyrði fyrir varanlega verðmætasköpun.
2. Að samtökin tali skýrt og beinskeytt gagnvart stjórnvöldum um aðhald, ráðdeild og ábyrgð í opinberum rekstri.
3. Að tryggja að regluverk, skattar og opinbert umhverfi styðji við vöxt og nýsköpun, en hamli þeim ekki.
4. Að rödd iðnaðarins heyrist skýrt í umræðu um framtíð vinnumarkaðar, tækniþróun og sjálfbærni.

Ég hef nýverið ákveðið að stíga til hliðar sem forstjóri KAPP og sinna því hlutverki sem stjórnarformaður samstæðunnar. Sú breyting veitir mér svigrúm til að leggja krafta mína einnig í sameiginleg verkefni iðnaðarins í heild.

Ég er beinskeyttur í skoðunum mínum, legg áherslu á lausnamiðað samtal og tel að íslenskur iðnaður standi frammi fyrir miklum tækifærum á komandi árum, ef rétt er haldið á málum.

Ég vil leggja mitt af mörkum í stjórn Samtaka iðnaðarins og óska eftir stuðningi ykkar til að vinna að öflugri hagsmunagæslu, skýrri framtíðarsýn og áframhaldandi uppbyggingu íslensks iðnaðar.

 

Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. Bíldudal 

HH_4

Ég býð fram krafta mína til stjórnarstarfa í Samtökum iðnaðarins. Ég sat í stjórn SI á árunum 2022–2024 og vil gjarnan leggja mitt af mörkum á þeim vettvangi á ný.

Mér er umhugað um að stjórn SI endurspegli breidd félagsmanna. Ólík reynsla, ólíkar atvinnugreinar og eðlileg blanda sjónarmiða af höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Ég trúi því að slík samsetning styrki umræðuna og auki áhrif.

Þegar ég bauð mig fyrst fram til stjórnarsetu árið 2022 kom skýrt fram í samtölum við félagsmenn að þeir vildu heyra oftar og skýrar frá stjórnarmönnum SI. Ég lagði mig fram um að svara því kalli á mínum stjórnartíma, meðal annars með greinaskrifum, viðtölum og virkri þátttöku í málþingum og ráðstefnum um hagsmunamál atvinnulífsins. Án öflugra fyrirtækja í sanngjörnu og fyrirsjáanlegu rekstrarumhverfi verða verðmæti ekki til. Fyrir þeim sjónarmiðum er nauðsynlegt að tala af festu.

Ég hef víðtæka reynslu af skipulags-, innviða- og leyfisferlum, bæði úr stjórnsýslu og atvinnulífi.

Sem fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í minnihluta í borgarstjórn fylgdist ég af fremsta bekk með því hvernig skipulagsferlar þyngdust í Ráðhúsinu, hve miklu samspil stofnana og regluverks ræður um framgang mála og hvernig tafir og óvissa geta grafið undan framkvæmdum og fjárfestingum.

Í störfum mínum fyrir Íslenska kalkþörungafélagið hef ég jafnframt tekist á við leyfis- og innviðamál vegna nýrrar verksmiðju í átta ár. Sú reynsla hefur gert mér enn ljósara hversu brýnt er að einfalda ferla, skýra ábyrgð, stytta boðleiðir og tryggja að lögbundnir frestir séu virtir.

Áherslur mínar eru í meginatriðum þessar:

• að taka raforku- og leyfismál fastari tökum og einfalda leyfisveitingakerfið,

• að hraða skipulagsferlum, umhverfismati og leyfisveitingum og tryggja virðingu fyrir lögbundnum frestum,

• að draga úr íþyngjandi regluverki og efla þjónustulund opinberra stofnana gagnvart atvinnulífinu, þar á meðal Skattsins,

• að styrkja vinnumarkaðslíkanið og stuðla að stöðugleika í kjaramálum, annars verður verðbólgan áfram viðvarandi á Íslandi

• að bregðast við framboðsvanda á húsnæðismarkaði og hemja lóðakostnað og innviðagjöld.

Ég tel mig geta lagt til stjórnar SI skýra rödd, reynslu af þeim hindrunum sem stjórnsýslan reisir einkaframtakinu og trausta málsvörn fyrir iðnað og atvinnulíf um land allt.      

 

Jón Eðvald Malmquist, aðstoðarframkvæmdastjóri Eyktar ehf.

JEM-Passamynd

Ágæti viðtakandi.

Íslenskur iðnaður skiptir miklu máli fyrir íslenskt efnahagslíf og velferð þjóðarinnar. Ég vil taka þátt í því að efla íslenskan iðnað og hef því ákveðið að bjóða mig fram til setu í stjórn Samtaka iðnaðarins.

Ég er lögfræðingur að mennt með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti. Starfsreynsla mín er víðtæk þar sem ég hef verið ríkisstarfsmaður, lögmaður og starfa nú sem aðstoðarframkvæmdastjóri Eyktar.

Í upphafi míns starfsferils starfaði ég hjá Ríkisendurskoðun og síðar í samgönguráðuneytinu. Þar fékk ég innsýn inn í það hvernig stjórnkerfið virkar. Það var virkilega gaman að vinna í ráðuneytinu og fá að takast á við hin ýmsu verkefni svo sem samning lagafrumvarpa, uppbyggingu á háhraðatengingum um landið, lagningu nýs sæstrengs og uppskiptingu Flugmálastjórnar sem leiddi til stofnunar Isavia. Alþjóðasamstarf var einnig stór þáttur í starfinu bæði á vegum Evrópusambandsins og samstarf við Norðurlöndin.

Þaðan lá leiðin í lögmennsku þar sem ég starfaði hjá LOGOS í um 12 ár. Þar vann ég með hinum ýmsu fyrirtækjum bæði innlendum og erlendum. Þar sérhæfði ég mig aðallega í málum er varðar verktaka- og útboðsrétt, samningarétt og málefni stjórnsýslunnar svo sem skipulagsmál. Þá var ég stundakennari í verktaka- og útboðsrétti í lagadeild Háskólans í Reykjavík. Lögmennskan kenndi mér mikilvægi þess að vera vel inni í málum, viðhafa góð samskipti og ekki síst að vera lausnamiðaður.

Á undanförnum árum hef ég starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri Eyktar og tekið þátt í þeim fjölmörgu verkefnum sem félagið hefur tekið að sér. Í rekstri iðnfyrirtækja eru gæða- og öryggismál mikilvæg. Að framleiða góða vöru og gæta að öryggi starfsmanna er leiðin að árangri.

Við sem störfum í íslenskum iðnaði þurfum að gæta að okkar hagsmunum og halda þeim á lofti. Megin markmiðið hlýtur ávallt að vera hjá okkur öllum að gæta að og efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar. Meðal þeirra atriða sem ég mun tala fyrir hjá Samtökum iðnaðarins eru:

- Að viðhafa virkt aðhald á stjórnvöld að vanda til verka við lagasetningu og ekki setja óþarfa álögur eða verkefni á íslensk fyrirtæki. Leita leiða til að einfalda regluverkið.

- Að ná niður verðbólgu og skapa skilyrði til lækkunar stýrivaxta. Það er enginn einn sem leysir vandann heldur þarf sameiginlegt átak.

- Að efla íslenska iðnmenntun og nýsköpun. Það er leiðin til að viðhalda öflugum iðnaði.

Mér þætti afar vænt um stuðning þinn til setu í stjórn Samtaka iðnaðarins.

 

Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma

Jonina-Gudmundsdottir

Ég hef setið í stjórn Samtaka iðnaðarins frá 2022, þar á meðal sem varaformaður, auk þess að sitja í stjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd SI.

Ég er lyfjafræðingur að mennt og hef víðtæka reynslu af stjórnunarstöðum hjá alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum, lengst af sem Vice Presedent Commercial Operation og staðgengill forstjóra Medis, dótturfyrirtækis Actavis – nú Teva. Frá árinu 2020 hef ég verið forstjóri Coripharma, en félagið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á samheitalyfjum sem það flytur út til annarra lyfjafyrirtækja í Evrópu. Hjá Coripharma starfa um 230 manns. Nánari upplýsingar um starfsferilinn má sjá á LinkedIn.

Það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með örum vexti aðildarfélaga Samtaka iðnaðarins á undanförnum árum. Sá árangur sýnir mikilvægi skýrrar stefnu, árangursríkrar hagsmunagæslu og framsækinnar vinnu starfsfólks SI.

Í starfi mínu hef ég fengið skýra innsýn í mikilvægi verðmætasköpunar til framtíðar, sem byggir á nýsköpun, menntuðu og öflugu starfsfólki og stöðugu rekstrarumhverfi. Þá er samkeppnishæfni íslensks iðnaðar í framleiðslu og útflutningi grunnforsenda fyrir áframhaldandi vaxtarmöguleikum.

Það er Samtökum iðnaðarins nauðsynlegt að hafa breiða skírskotun og að stjórnin standi fyrir sem fjölbreyttustum hópi einstaklinga með ólíkan bakgrunn og sem starfa á ólíkum sviðum samfélagsins. Ég vona að framboð mitt færi stjórn samtakanna nauðsynlega breidd og innsýn inn í hugverkaiðnað, rekstur nýsköpunarfélags í hröðum vexti sem og framleiðsluiðnað til útflutnings. Innviðir, orkumál og viðnámsþróttur samfélagsins eru einnig málefni sem ég hef mikinn áhuga á og tel að skipti sífellt meira máli fyrir aðildarfélög Samtaka Iðnaðarins í hröðum og síbreytilegum heimi.

Samtök iðnaðarins gegna lykilhlutverki við að hlúa að hagsmunum fjölbreytts iðnaðar, viðhalda sterkri ímynd og þjónusta félagsmenn. Mér er annt um að auka verðmætasköpun frá íslenskum iðnaði og styrkja þannig stöðu Íslands til framtíðar og því gef ég kost á mér til áframhaldandi stjórnarsetu.

 

Sara Lind Guðbergsdóttir, framkvæmdastjóri Climeworks á Íslandi

Sara-Climeworks

Ágætu félagsmenn Samtaka iðnaðarins,
Ég gef hér með kost á mér til áframhaldandi setu í stjórn Samtaka iðnaðarins. Eftir að hafa gegnt hlutverki fyrsta varamanns í stjórninni á liðnu ári þekki ég vel þau stóru hagsmunamál sem brenna á aðildarfyrirtækjum og hvernig stjórnin getur best beitt sér fyrir bættu rekstrarumhverfi íslensks iðnaðar.
Hvað kem ég með að stjórnarborðinu?
• Reynslu af því að reka nýsköpunarfyrirtæki í nýjum iðnaði hér heima og erlendis.
• Sérþekkingu á flóknu útboðs- og samningaumhverfi.
• Lausnamiðaða nálgun á mönnunar- og menntunarmál í gegnum kjarasamninga og starfsmenntunarsjóði.
•Styrk í hagsmunagæslu og samskiptum við stjórnvöld vegna víðtækrar reynslu úr stjórnkerfinu.

Sem framkvæmdastjóri Climeworks á Íslandi ber ég ábyrgð á rekstri tveggja kolefnisföngunarvera og vinn að stefnumótun, hagsmunagæslu og þróun nýrrar tækni í iðnaði. Í fyrri störfum mínum sem forstjóri Ríkiskaupa byggði ég upp yfirgripsmikla þekkingu á útboðsmálum í verklegum framkvæmdum og innkaupum ríkisins á vörum og þjónustu. Þar leiddi ég umbætur sem miðuðu að auknu gagnsæi og gæðum í flóknum innkaupaferlum með það að markmiði að bæta ríkisrekstur og örva markaðsaðstæður. Þessi reynsla nýtist með beinum hætti í stjórn SI, enda er sanngjarnt og skilvirkt útboðsumhverfi forsenda fyrir heilbrigðum rekstri fjölmargra iðnfyrirtækja.

Ein stærsta áskorun iðnaðarins er að tryggja aðgang að hæfu starfsfólki. Bakgrunnur minn sem lögfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, ásamt setu í fjölmörgum starfsþróunar- og símenntunarsjóðum, veitir mér einstaka sýn á hvernig megi efla menntun og færni innan iðnaðarins. Sem fyrrum samningamaður í samninganefnd ríkisins í kjarasamningagerð þekki ég þau mál frá grunni og skil hvernig lagaleg umgjörð og samningar hafa bein áhrif á samkeppnishæfni fyrirtækja.

Ég bý að auki yfir áralangri reynslu af stjórnarsetu, meðal annars hjá Lífeyrissjóði bænda og Vinnueftirlitinu, þar sem ég hef ávallt lagt áherslu á faglega stjórnarhætti og ábyrga ákvarðanatöku.
Markmið mitt er að nýta þessa reynslu til að vinna að sterkari stöðu íslensks iðnaðar, einfaldara regluverki og aukinni verðmætasköpun.

 

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Siríus hf.

Studio-Session-647

Kæru félagar hjá Samtökum iðnaðarins,

Sigríður Hrefna heiti ég og býð mig fram til stjórnar Samtaka Iðnaðarins af þeirri sannfæringu að íslenskur iðnaður standi á spennandi og krefjandi tímamótum, tímamótum sem kalla á framtakssemi, aukið samstarf og sameiginlega sýn á það hvernig við byggjum upp sterkari, sjálfbærari og samkeppnishæfari iðngreinar til framtíðar.

Sjálf er ég menntaður lögfræðingur frá Háskóla Íslands, með lögmannsréttindi og held á meistaraprófi í stjórnun frá CBS í Kaupmannahöfn og er auk þess löggiltur verðbréfamiðlari. Hvað varðar starfsreynslu þá hef ég öðlast reynslu frá fjölmörgum sviðum atvinnulífsins lengst af sem stjórnandi eða stjórnarmaður félaga hérlendis sem erlendis. Ég hef starfað sem lögmaður, stýrt fasteignafélögum, starfað á fjármálamörkuðum bæði í fjárfestingabankastarfsemi sem og einstaklingsþjónustu auk þess sem ég hef stýrt félögum í verslun og þjónustu. Í dag starfa ég sem forstjóri Nóa Síríus hf., sem er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins. Þá er ég stjórnarformaður Landsbréfa hf. og Sjónlags hf. og á sæti í Viðskiptaráði.

Ég gef kost á mér til setu í stjórn Samtaka iðnaðarins þar sem ég hef sterka trú á mikilvægi íslensks iðnaðar fyrir verðmætasköpun, atvinnu, nýsköpun og sjálfbæra framtíð landsins. Iðnaðurinn stendur á tímum mikilla breytinga hvað varðar tækni, verk og vinnulag þar sem áherslur eru á aukna skilvirkni og einföldun. Sem forstjóri Nóa Síríus hef ég leitt umbreytingu í einu rótgrónasta framleiðslufyrirtæki landsins og séð hversu mikilvægt er að efla rekstrarumhverfi, nýta tækni og styrkja virðiskeðjur. Ég tel að Samtök iðnaðarins geti verið enn öflugri málsvari fyrirtækja og stutt þau í að sækja fram í umhverfi einfaldara regluverks og eftirlits. Ég hef trú á að leiðin til vaxtar sé með þróun og nýsköpun í núverandi rekstri. Ég er ötull talsmaður tækni og tækniumbreytinga og hef með eigin störfum komið að umbreytingu á bankaþjónustu einstaklinga á Íslandi sem og í framleiðslu hjá Nóa Síríus. Með framboði mínu vil ég taka virkan þátt í að móta framtíð íslensks iðnaðar með hagsmuni félagsmanna, stöðugleika atvinnulífs og aukinni verðmætasköpun að leiðarljósi. Ég er reiðubúin að vinna af heilindum, krafti og skýrri sýn að sameiginlegum árangri. Það er von mín að reynsla mín og breið þekking á íslensku atvinnulífi geti komið að góðum notum. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til að efla íslenskan iðnað enn frekar til framtíðar.

 

Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga

SigurjonIðnaðarstarfsemi í hefðbundnum skilningi þess orðs hefur lengi verið burðarás í íslensku atvinnulífi. Á síðustu árum hafa síðan bæst við í vaxandi mæli greinar á borð við hugverkaiðnað, skapandi greinar, tæknifyrirtæki og ferðaþjónusta. Þessi þróun er mikilvæg og sýnir þann fjölbreytileika og þann þrótt sem tekist hefur að byggja upp í íslensku atvinnulífi á síðustu áratugum. Allt er þetta undirstaða lífskjara í landinu og skapar verðmæti sem samfélagið í heild nýtur.

Umgjörðin sem atvinnulífinu er búin af stjórnvöldum og opinberum stofnunum ræður því hvort þessi verðmætasköpun nær að blómstra. Það krefst umhverfis þar sem menntakerfið er í takt við þarfir atvinnulífsins, þar sem hvatar eru til staðar fyrir einstaklinga og fyrirtæki að sækja fram og þar sem íslensk fyrirtæki geta keppt á jafnréttisgrundvelli við önnur þjóðríki. Þar er samkeppnishæfni þjóðarinnar undir, bæði hvað varðar hefðbundinn iðnað og þær nýju greinar sem byggja á hugviti, sköpunarkrafti og þekkingu.

Hugverkaiðnaðurinn gegnir sífellt stærra hlutverki í útflutningi, verðmætasköpun og fjölgun fjölbreyttra starfa. Þar eru fólgin mikil tækifæri fyrir Ísland, ekki síst í samspili við sterka grunninn í orku, matvælaframleiðslu, verkfræði og framleiðsluiðnaði. Það er mikilvægt að Samtök iðnaðarins taki virkan þátt í að móta stefnu sem styður þessa þróun, hvetur til nýsköpunar og tryggir að regluverk og skattaumhverfi styðji við vöxt og alþjóðlega samkeppnishæfni fyrirtækja í öllum greinum.

Fyrir iðnaðinn er brýnt að vinda ofan af þeirri íþyngjandi gullhúðun sem einkennt hefur innleiðingu regluverks á síðustu árum, einfalda regluverk, berjast fyrir skattkerfi sem er þjóðhagslega hagkvæmt og efla enn frekar iðn- og tæknimenntun. Ég hef um langt skeið haft ríkan áhuga á að stuðla að umbótum á starfsskilyrðum í íslensku atvinnulífi og vil leggja mitt af mörkum með því að gefa kost á mér til setu í stjórn Samtaka iðnaðarins.

Í gegnum störf mín undanfarna áratugi hef ég komið að rekstri, stjórnarsetum og stefnumótun fyrirtækja af ýmsum toga og öðlast víðtæka þekkingu á íslenskum atvinnumarkaði og því umhverfi sem honum er búið af stjórnvöldum á hverjum tíma. Undir hatti KS er rekin fjölbreytt iðnaðarstarfsemi; eitt af stærstu rafmagnsfyrirtækjum landsins, stærsta bifreiðaverkstæði utan höfuðborgarsvæðisins, vélsmiðja, trésmíðaverkstæði, vöruflutningar og umfangsmikil matvælaframleiðsla. Þá er undirritaður formaður SAFL, Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, sem veitir mér innsýn í samspil iðnaðar, frumframleiðslu og verðmætasköpunar í dreifðum byggðum landsins.

Samtök iðnaðarins eru stærstu aðildarsamtök Samtaka atvinnulífsins með breiðastan hóp aðildarfyrirtækja. Innan SI er fyrir hendi mikil þekking á leikreglum atvinnulífsins og ekki síður á því hvað má betur fara. Ég hef ákveðið að bjóða fram krafta mína til stjórnarsetu í SI næstu tvö árin og tel að þar geti ég lagt mitt af mörkum til að styrkja íslenskt atvinnulíf, efla samkeppnishæfni þess og stuðla að farsælu samspili hefðbundins iðnaðar og nýrra vaxtargreina til framtíðar.

 

Sigþór H. Guðmundsson, yfirlögfræðingur Controlant hf.

Sigþór H. Guðmundsson

Ég býð mig fram til stjórnar Samtaka iðnaðarins á ný, á grundvelli þeirrar reynslu og innsýnar sem ég hef öðlast í starf samtakanna undanfarin ár, sem varamaður í stjórn SI. Á þessum tíma hef ég öðlast góða innsýn í starfshætti, forgangsröðun og þær fjölbreyttu áskoranir sem samtökin og félagsmenn þeirra standa frammi fyrir. Sú reynsla gerir mig vel í stakk búinn til að koma með raunhæft og markvisst framlag í stjórn samtakanna.

Samtök iðnaðarins standa fyrir breiðan hóp atvinnugreina með ólíkar þarfir, en sameiginlega hagsmuni þegar kemur að samkeppnishæfni, stöðugu rekstrarumhverfi og skýru regluverki. Ég tel mikilvægt að stjórn SI hafi þessa heildarsýn að leiðarljósi í störfum sínum.

Á rúmlega 25 ára starfsferli, nú sem yfirlögfræðingur Controlant hf., hef ég starfað bæði innanlands og erlendis, í alþjóðlegu og flóknu rekstrarumhverfi þar sem regluverk, álögur og framkvæmd opinberrar stefnu hafa bein áhrif á hagsmuni rekstraraðila. Þótt stjórnvöld hérlendis hafi ítrekað boðað einföldun regluverks er lykilatriði að slíkum yfirlýsingum sé fylgt eftir í framkvæmd. Þar gegna Samtök iðnaðarins mikilvægu hlutverki við að veita stjórnvöldum faglegt aðhald og tryggja að markmið skili raunverulegum ávinningi.

Undanfarið hafa álögur á fyrirtæki aukist, bæði beint og óbeint. Mikilvægt er að hver ný skuldbinding, skattur eða reglubreyting sé metin út frá áhrifum á samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja, sérstaklega í alþjóðlegu samhengi. Verulegar breytingar á alþjóðlegu viðskipta- og regluverksumhverfi síðustu ára kalla jafnframt á endurmat og skýrari forgangsröðun.

Íslenskt atvinnulíf hefur þróast hratt á undanförnum árum, þar sem tækni-, nýsköpunar- og hugverkageirinn hefur orðið sífellt mikilvægari stoð undir verðmætasköpun. Samhliða eru viðfangsefni á borð við orkumál, innviði, húsnæði og mannauð brýn. Í þessu samhengi tel ég mikilvægt að stjórn SI sameini skýra stefnumótun og raunhæfa framkvæmd í þágu félagsmanna.

Ég hef ríkan áhuga á hagsmunum íslensks atvinnulífs og tel að reynsla mín, þekking og innsýn í starf SI nýtist samtökunum og félagsmönnum þeirra vel.

 

Viðar Erlingsson, EVP & CDO hjá JBT Marel

Vidar

Ég býð mig fram til stjórnar Samtaka iðnaðarins því ég vil leggja mitt af mörkum til áframhaldandi eflingar íslensks iðnaðar í síbreytilegu og krefjandi alþjóðlegu umhverfi. Iðnaðurinn gegnir lykilhlutverki í verðmæta- og nýsköpun og sjálfbærri þróun samfélagsins og tel ég mikilvægt að samtökin hafi skýra framtíðarsýn og sterka rödd í mótun umhverfis sem styður við samkeppnishæfni og vöxt.

Í starfi mínu fyrir JBT Marel og Emblu á yfir tveggja áratuga tímabili hef ég öðlast fjölþætta reynslu af nýsköpun og hátækniiðnaði og þekkingu á því hvað þarf til til að ná árangri á íslenskum og erlendum vettvangi. Ég hef setið í framkvæmdastjórn alþjóðlegra fyrirtækja, hef tekið þátt í stefnumótun á öllum stjórnendastigum, hef leitt þróun nýrra vara á markað og stýrt umfangsmiklum umbreytingarverkefnum. Sú reynsla hefur kennt mér mikilvægi skýrra markmiða, góðrar stjórnarhátta, samvinnu og langtímahugsunar.

Megináherslur mínar í stjórnarstarfi yrðu að styðja við aukna framleiðni og nýsköpun í iðnaði, efla samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á alþjóðamörkuðum og tryggja að regluverk, innviðir og menntun styðji við þarfir atvinnulífsins. Sérstaklega tel ég mikilvægt að nýta tækni og stafrænar lausnir markvisst, bæði til að bæta rekstur og til að skapa ný tækifæri, á sama tíma og sjálfbærni og ábyrg nýting auðlinda er höfð að leiðarljósi.

Ég tel mig hafa skýra sýn, metnað og víðtæka reynslu sem nýst gæti vel í stjórn Samtaka iðnaðarins. Með sameiginlegu átaki getum við styrkt stöðu iðnaðarins, aukið verðmætasköpun og skapað umhverfi þar sem íslensk fyrirtæki og starfsfólk þeirra fá að blómstra til framtíðar.