Fréttasafn



3. feb. 2022 Almennar fréttir Menntun

Framlengdur frestur fyrir Menntaverðlaun atvinnulífsins

Frestur til að skila inn tilnefningum til Menntaverðlauna atvinnulífsins hefur verið lengdur til 25. febrúar. Verðlaunin verða afhent á Menntadegi atvinnulífsins sem haldinn verður í 9. sinn í Hörpu fimmtudaginn 6. apríl. ÞLeitað er að fyrirtækjum sem staðið hafa sig vel á sviði fræðslu- og menntamála.

Verðlaun eru veitt í tveimur flokkum:

Menntafyrirtæki ársins - helstu viðmið:

• að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins

• að sem flest starfsfólk taki virkan þátt

• að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum

• að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar

Menntasproti ársins - helstu viðmið: 

• að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,

• samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.

Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf en skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni.

Skila þarf greinargerð að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar. Tilnefningar og fylgiskjöl sendist rafrænt í tölvupósti á verdlaun@sa.is – eigi síðar en föstudaginn 25. febrúar. Ekki er tekið við tilnefningum eða gögnum eftir þann tíma.

Myndin fyrir ofan er frá afhendingu verðlaunanna 2019.