Fréttasafn



7. nóv. 2022 Almennar fréttir Mannvirki

FSRE með kynningu á alútboði fyrir byggingu í Hveragerði

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir, FSRE, stendur fyrir kynningarfundi um lokað alútboð byggingar 22 rýma hjúkrunarheimilis í Hveragerðisbæ. Fundurinn sem fer fram á Hótel Örk verður haldinn miðvikudaginn 9. nóvember kl. 15.00 og verður í klukkustund.

FSRE, heilbrigðisráðuneytið og Hveragerðisbær, hafa auglýst eftir umsóknum byggingaraðila (aðalverktökum) um þátttökurétt í lokuðu alútboði á fullnaðarhönnun og byggingu 22 rýma hjúkrunarheimilis andspænis núverandi dvalar- og hjúkrunarheimilinu ÁS við Hverahlíð 19 í Hveragerði. Í tilkynningu segir að um sé að ræða forval, þar sem aðilar verða valdir með tilliti til hæfi og reynslu. Leitað er að aðilum sem geti tekið að sér að hanna og byggja 22 rýma hjúkrunarheimili fyrir fasta fjárhæð samkvæmt alútboðsaðferð. Áætluð húsrýmisþörf er 1.430 m2 (BR).

Á fundinum mun Hildur Georgsdóttir, aðallögfræðingur FSRE, kynna alútboðsformið og Ólafur Daníelsson, deildarstjóri sérhæfðs húsnæðis hjá FSRE, kynna verkefnið. Að því loknu verður opnað fyrir spurningar úr sal. Kaffiveitingar verða á boðstólum.

Hér er hægt að nálgast útboðsauglýsingu. 

Hér er hægt að skrá sig á fundinn. 

Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar.