Full ástæða til að endurskoða fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í frétt mbl.is um nýja greiningu SI um 50% hækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði á 10 árum að um verulegan kostnað fyrir fyrirtækin sé að ræða og að um 64% fyrirtækja segi að lækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði myndi skipta miklu máli fyrir reksturinn. „Á sama tíma er eðli skattsins þannig að hann tengist ekki beint þjónustu, heldur er einfaldlega eignaskattur. Við sjáum líka ákveðna hvata í kerfinu þar sem skortur á lóðum og hækkandi fasteignaverð leiða til hærra fasteignamats og þar með aukinna skatttekna fyrir sveitarfélögin. Það er því full ástæða til að endurskoða fyrirkomulagið.“ Sigurður segir einnig í fréttinni að það komi á óvart að ekki sé meiri samkeppni milli sveitarfélaga um að lækka álögur og laða að atvinnustarfsemi, enda séu störf og fyrirtæki grundvöllur blómlegra samfélaga.
Á vef mbl.is er hægt að lesa fréttina í heild sinni.
mbl.is, 8. maí 2026.

