Fulltrúar innkaupastofnunar Atlantshafsbandalagsins á Íslandi
Utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæsla Íslands tóku á móti fulltrúum frá innkaupastofnun Atlantshafsbandalagsins (NSPA) í síðustu viku. Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að heimsóknin hafi verið með tvíþættum tilgang. Í fyrsta lagi að kynna starfsemi innkaupastofnunarinnar fyrir íslenskum fyrirtækjum sem hafa áhuga á að eiga viðskipti við Atlantshafsbandalagið eða bandalagsríki. Utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæslan héldu í samráði við Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins fjölmennan kynningarfund þess efnis á aðalskrifstofu ráðuneytisins en einnig var farið í fyrirtækjaheimsóknir til fyrirtækja sem bjóða upp á tækni með tvíþætt notagildi. Í öðru lagi var tilgangur heimsóknarinnar að kynna stofnunina fyrir áhugasömum sérfræðingum en stofnunin stefnir að því bæta töluvert í ráðningar á næstu misserum.
Á vef Stjórnarráðsins er hægt að nálgast frekari upplýsingar um heimsókn fulltrúanna.

