Fréttasafn



7. nóv. 2023 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Fundur á Húsavík um þróun íbúðamarkaðar

Opinn fundur um atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðarmarkaðar í landsbyggðunum verður haldinn föstudaginn 10. nóvember á Fosshótel Húsavík kl. 11.30-13.00 og er opinn öllum. Að fundinum standa SSNE, Byggðastofnun, HMS, Lóa nýsköpunarstyrkur og Samtök iðnaðarins.

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði, stafræn byggingarleyfi, nýsköpunarstyrki, hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu og þau lánaúrræði sem standa til boða bæði hvað varðar rekstur og íbúðaruppbyggingu.

Dagskrá

  • Tækifæri og áskoranir á Norðurlandi eystra Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri SSNE
  • Staða íbúðauppbyggingar Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri hjá HMS
  • Stafræn byggingarleyfi Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri hjá HMS
  • Lánastarfsemi Byggðastofnunar Hrund Pétursdóttir, forstöðumaður Fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar og Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun
  • Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina Sigurður Steingrímsson, sérfræðingur hjá HVIN
  • Aukum hagkvæmni og skilvirkni í íbúðauppbyggingu Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI

Húsið opnar kl. 11.15 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. Fundarstjóri er Helena Eydís Ingólfsdóttir, varaformaður SSNE og bæjarfulltrúi í Norðurþingi.