Fundur um innviði á Norðurlandi í Hofi á Akureyri
Samtök iðnaðarins, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Landsnet boða til opins fundar í Hofi á Akureyri fimmtudaginn 7. apríl kl. 16–18. Yfirskrift fundarins er Innviðir á Norðurlandi - Áskoranir í íbúðauppbyggingu og orkuöflun. Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum. Fundurinn er opinn öllum. Hér er hægt að skrá sig á fundinn.
Þátttakendur í dagskrá
- Fundarstjórn - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Ávarp - Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
- Ávarp - Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri
- Ný íbúðatalning SI og HMS - Friðrik Ág. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI
- og fulltrúi Meistarafélags byggingarmanna á Norðurlandi
- Húsnæðisáætlanir, almenn leigufélög og hlutdeildarlán - Hermann Jónasson, forstjóri HMS
- Framtíð skipulags á Akureyri - Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsfulltrúi Akureyrarbæjar
- Staða og áskoranir í orkumálum á Norðurlandi - Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
- Mikilvægi nútíma innviða til raforkuflutninga - Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri þróunar- og tæknisviðs Landsnets
- Breyttar ferðavenjur - Guðmundur Haukur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vistorku
- Rafbílavæðing almennings - Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns
Hér er hægt að nálgast streymi frá fundinum:
https://www.youtube.com/watch?v=CEFUp9yRuoQ