Fyrirtæki farin að finna fyrir afleiðingum tollastríðs
„Myndin er virkilega flókin sem gerir það af verkum að allt verður tímafrekara og það þarf að hugsa hlutina svolítið upp á nýtt,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í frétt Stöðvar 2 um áhrif tollastríðs á íslensk fyrirtæki. Í fréttinni kemur fram að það sé ekki bara fiskur og ál sem flutt sé út frá Íslandi heldur einnig ýmislegt annað, til að mynda vörur og þjónusta sem byggi á íslensku hugviti og að fyrirtæki í þessum geira séu mörg hver þegar farin að finna fyrir afleiðingum tollastríðs. Í fréttinni kemur fram að tollafgreiðsla á innflutningi til Bandaríkjanna sé orðin mun tímafrekari og flóknari í vöfum. „Nú þarf að gera grein fyrir því til dæmis hvernig vörur eru samsettar. Hvað er mikið af til dæmis stáli eða áli í sem að tilheyrir vörunni og þá þarf að tollafgreiða það miðað við reglurnar og myndin er virkilega flókin,“ segir Sigurður.
Rætt um að halda námskeið fyrir fyrirtæki
Þá kemur fram að Samtök iðnaðarins eigi í nánu samtali við utanríkisþjónustuna vegna þróunarinnar í alþjóðamálum. „Það sem hefur verið rætt þar er til dæmis að halda námskeið fyrir fyrirtæki um það hvernig eigi að gera grein fyrir uppruna í þessum aðstæðum. Þannig að það er margt sem að fólk þarf að læra í þessum breytta veruleika.“
Hlutirnir gerast mjög hratt
Þá segir í fréttinni að sum fyrirtæki séu þegar farin að huga að því að flytja framleiðslu sína annað, breyta innkaupastefnu eða hækka verð. „Ég veit alla veganna að það eru mörg fyrirtæki að huga að því um þessar mundir, eðlilega. En auðvitað vitum við það líka að hlutirnir gerast mjög hratt þannig að það er býsna erfitt kannski að átta sig á því nákvæmlega núna eða taka ákvarðanir. En svo sannarlega eru öll fyrirtæki meira og minna að huga að þessu, fyrirtæki sem eru að fá aðföng héðan og þaðan úr heiminum.“
Stöð 2, 26. apríl 2025.