Fréttasafn



6. mar. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Fyrirtæki sem setja nýsköpun á oddinn eru sveigjanlegri

„Fyrirtæki sem setja nýsköpun á oddinn eru sveigjanlegri, sýna meiri seiglu þegar hart er í ári og óttast ekki breytingar,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins í nýjasta hlaðvarpi Augnabliks í iðnaði þar sem rætt er um nýsköpun. Hlaðvarpinu er haldið úti af Iðunni fræðsluseturs.

Nanna ræðir í hlaðvarpinu um mikilvægi nýsköpunar í íslenskum iðnaði, stuðning stjórnvalda og sýn Samtaka iðnaðarins á framtíðina. Fjárfesting í rannsóknum og þróun og sérfræðiþekkingu er lykill að aukinni nýsköpun í íslensku atvinnulífi. „Nýsköpun á sér að stórum hluta stað í iðnaði þar sem við erum að þróa vörur, nýja tækni og framleiðsluaðferðir,“ segir Nanna en þegar Samtök iðnaðarins gáfu út nýsköpunarstefnu sína árið 2018 var langt í land, síðan þá hafi orðið mikil breyting til batnaðar og í dag hafi útflutningverðmæti hugverkaiðnaðar náð 214 milljörðum.

Í hlaðvarpinu kemur fram að til að ná árangri sé þó ekki nóg að taka ákvörðun um að stunda rannsóknir og þróun til nýrrar tækni, vara og framleiðsluaðferða. Nanna segir að það þurfi einnig að styðja við nýsköpunarmenningu innan fyrirtækja og til þess þurfi stjórnendur að treysta starfsfólki sínu, leyfa mistök og skapa rými fyrir sköpun. Þá þurfi samtalið við viðskiptavininn og samfélagið að vera mjög öflugt.

Á vef Iðunnar er hægt að hlusta á viðtalið við Nönnu í heild sinni.