Fréttasafn



12. okt. 2023 Almennar fréttir Félag dúklagninga og veggfóðrarameistara Menntun

Fyrsta konan sem lýkur sveinsprófi í veggfóðrun og dúkalögn

Ingunn Björnsdóttir er fyrsta konan hér á landi sem lýkur sveinsprófi í veggfóðrun og dúkalögn en þess má geta að hún fékk 10 í einkunn fyrir verklega prófið. Ingunn var á námssamning hjá fyrirtækinu Hasar ehf. þar sem hún starfar enn í dag en fyrirtækið sérhæfir sig í gólfefnum, veggklæðningum og sjónfloti. 
Tækniskólinn hefur eftir Ingunni á Facebook að hún hafi heyrt frá kennurum að það hafi enginn kona náð að útskrifast með sveinspróf í þessari grein. „Og þá fannst mér þetta enn þá meira spennandi og setti markið á að klára þetta alla leið.“

Hér er hægt að nálgast færslu Tækniskólans á Facebook. 

Hér er hægt að nálgast viðtal við Ingunni í kvöldfréttum RÚV, 16. október 2023.