Fréttasafn



4. ágú. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Gætu verið nokkrir milljarðar undir í ólögmætum tollum

Það gætu verið nokkrir milljarðar undir fyrir íslensk fyrirtæki en útflutningur til Bandaríkjanna hefur farið vaxtandi undanfarin ár segir Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, í umfjöllun Viðskiptablaðsins um endurgreiðslu á ólögmætum innflutningstollum Bandaríkjanna en Lauf Cycles er meðal fyrirtækja sem hafa fengið tolla endurgreidda.

Unnið markvisst að því að gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja

Lilja segir í Viðskiptablaðinu að Samtök iðnaðarins viti til þess að fyrirtæki hér á landi meti nú stöðuna eftir niðurstöður Hæstaréttar Bandaríkjanna og að einhver fyrirtæki hafi þegar krafist endurgreiðslu. „Samtök iðnaðarins hafa fylgst náið með þróun mála eftir að tollarnir voru settir á og unnið markvisst að því að gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja. Samtökin hafa komið hagsmunum félagsmanna á framfæri og átt í góðri samvinnu við utanríkisráðuneytið vegna þessa.“

Útflutningur til Bandaríkjanna orðinn flóknari

Í Viðskiptablaðinu kemur fram að Lilja segir tollana ekki leggjast á allar vörur sem fluttar séu til Bandaríkjanna sem hafi hjálpað til og að Bandaríkjamarkaður sé meðal annars mikilvægur fyrir tækni- og hugverkaiðnað, sem hafi verið í örum vexti og gæti orðið verðmætasta útflutningsstoð Íslands við lok þessa áratugar. Þá sé Bandaríkjamarkaður til að mynda helsti markaðurinn fyrir lyf sem framleidd séu hér á landi. „Íslensk fyrirtæki finna fyrir því að útflutningur til Bandaríkjanna er orðinn flóknari, ekki eingöngu vegna aukins kostnaðar heldur vegna aukins flækjustigs við tollafgreiðslu sem krefst aukins mannafla og lengri afgreiðslutíma.“

Viðskiptablaðið, 19. júlí 2026.