Fréttasafn



4. jún. 2026 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Grænvangur kynnir fyrstu hvítbókina um beina nýtingu jarðhita

Grænvangur hefur kynnt fyrstu hvítbókina um beina nýtingu jarðhita. Útgáfan er afrakstur fjölmargara aðila í baklandi Grænvangs sem hafa sameinast um að varpa ljósi á hvernig jarðhiti getur stutt við orkuskipti, nýsköpun, og sjálfbæra verðmætasköpun, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi.

Hvítbókin fjallar um hvernig hægt er að umbreyta jarðhita í stefnumarkandi innviði sem stuðla að hagkvæmri húshitun, atvinnuuppbyggingu og sjálfbærum hagvexti. Byggt er á meira en aldarlangri reynslu Íslands og alþjóðlegum dæmum. Þá veitir handbókin hagnýta innsýn í þær stefnur, fjármögnunarleiðir, tæknilausnir og samstarfsform sem gera jarðhitaverkefni farsæl. Allt frá hita- og kælikerfum fyrir byggðarlög til landbúnaðar, fiskeldis, iðnaðar, ferðaþjónustu og innviða í þéttbýli sýnir ritið hvernig nýting jarðvarma getur skapað verðmæti í fjölmörgum atvinnugreinum um leið og stutt er við loftslags- og orkumarkmið.

Meðal þeirra sem unnið hafa að hvítbókinni með því að leggja til efni og taka þátt í vinnuhópi eru  Íslandsstofa, COWI, Efla, Jarðboranir, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfis- og orkustofnun, Landsvirkjun, Veitur, Verkís, ON, ORKIS og Isor.

Hér er hægt að nálgast hvítbókina.

Forsida_1780572350081