Fréttasafn



14. nóv. 2022 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Hætta á að dragi úr byggingu húsnæðis með nýju frumvarpi

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í frétt RÚV að hætt sé við að það dragi úr byggingu húsnæðis verði drög að nýju frumvarpi að lögum þar sem sveitarfélögum verði heimilt að krefjast þess að 25% þess íbúðarhúsnæðis sem byggt er verði fyrir hagkvæmar íbúðir, leiguíbúðir eða aðrar íbúðir sem njóta stuðnings ríkis eða sveitarfélaga, hvort sem eigandi lands er sveitarfélag, ríki eða einkaaðili. 

Vantar hvata til að byggja

Sigurður segir að fara þurfi betur yfir málið áður en frumvarpsdrögin verða að lögum. „Vandinn við útfærsluna eins og hún er sett fram núna er að hún mun ekki bara draga úr uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði heldur mun hún líka draga úr uppbyggingu húsnæðis almennt.“ Þegar hann er spurður af hverju þetta muni draga úr uppbyggingu á húsnæði svarar Sigurður: „Eins og þetta er sett fram þá gildir þessi heimild á línuna. Það gildir þá líka á eignalöndum, ekki bara á löndum í eigu sveitarfélaganna. Þannig að þeir sem eiga eignarlönd vantar hvata til að byggja upp.“ 

Hætt við að verði ekki arðbært að byggja íbúðarhúsnæði

Í frétt RÚV segir Sigurður að þannig varði heimildin samkvæmt frumvarpsdrögunum við eignaréttarákvæði stjórnarskrár, með því að allt að fjórðungur verði að vera íbúðir á hagkvæmu verði sé hætt við að ekki verði lengur arðbært að byggja íbúðarhúsnæði. „Það eru alla vega líkur á því og veruleg hætta á því. Það segir sig þá sjálft að undir slíkum kringumstæðum verður ekki ráðist í framkvæmdir.“

RÚV, 11. nóvember 2022.v